febrúar 09, 2004

Johnny Cash

Alveg hreint magnað hvað Johnny Cash gat búið til magnaða tónlist. Ekki slæmur árangur hjá nær laglausum manni. Það er samt bara eitthvað við þessa rödd... eitthvað óútskýranlega hugljúft.

Annars veit ég ekki hvað það segir um tónlistarsmekk minn að ég er þekktur (eða jafnvel alræmdur meðal vina minna) fyrir dálæti mitt á Bob Dylan og Leonard Cohen. Johnny Cash? Já, hvers vegna ekki? Einum laglausum raularanum fleira. Að halda hreinum tóni er greinilega ofmetið.
Magnað!

Fyrst ég er farinn að tjá mig um tónlist, ég er ekki sammála þeim spekúlöntum sem segja Love And Theft vera betri plötu en Time Out of Mind. Nema Time Out of Mind sé komin í slíkt uppáhald hjá mér að ég geti ekki dæmt um það. Kann að vera.
Agust skrifaði 09.02.04 22:30

Flokkun: Menning
Comments

Cash er góður, en mistækur.

Strumpurinn skrifaði 09.02.04 22:35

Þú hefur væntanlega heyrt Girl From North Country af Nashville Skyline. Alveg magnaður dúett hjá Cash og Dylan.

Annars, talandi um þetta þá fattaði ég ekki Dylan fyrr en fyrir svona rúmu ári en hef sankað að mér mestu safninu og elska manninn útaf lífinu. Fíla einnig Cash, hef þó að mestu leyti hlustað á Folsom Prison og svo American plöturnar ásamt einhverjum Best Of plötum. Hef þó aldrei fílað Leonard Cohen, hef í raun aldrei gefið honum sjens.

Það hlýtur þó að vera eitthvað vit í honum. Allavegana sem lagasmið, því Hallelujah með Jeff Buckley er mögnuð snilld

Einar Örn skrifaði 09.02.04 22:43

Einar, keyptu þér bara Song of Leonard Cohen. Spilaðu hana nógu oft til að þú sért farinn að halda að þú botnir eitthvað í textunum - þá ertu orðinn Cohen fan. "Songs of" platan (sem er ekki safnplata) er sú sem þú þarft að eiga. Svo hefur karlgreyið bara gert nokkur önnur góð lög. Reyndar hefur hann gefið út afskaplega fáar plötur ef út í það er farið.

Svo mæli ég með Robert Altman myndinni McCabe & Mrs. Miller með Warren Beatty og gömlu bombunni Julie Christie. Það var þegar ég horfði á þá mynd sem ég "uppgötvaði" Leonard Cohen.

En einsog áður sagði, "Song of" platan er svona plata sem þú verður að eiga. Rétt einsog t.a.m. Blonde on Blonde, Pet Sounds, allt Bítlasafnið og fleiri til ;)

Ágúst skrifaði 09.02.04 22:59

Ten New Songs m. Leonard Cohen er líka mjög fín að mínu mati.

Már Örlygsson skrifaði 10.02.04 00:35