febrúar 12, 2004
Bréf Johns Kerry til Írana
Ef þetta er rétt, þá er þetta frekar merkilegt: Kerry Says He Will Repair Damage If He Wins Election (Tehran Times) [sjá einnig MEMRI: Iranian News Agency Alleges Presidential Candidate John Kerry Sends Email Message]Það er samt eitthvað við þetta sem maður setur fyrirvara við, að bréfið sé frá kosningaskrifstofu Kerrys, en samt, ef rétt er, þá er þessi yfirlýsing mjög jákvæð. Kerry kaus aftur á móti með endurnýjunni á ILSA (lögum um viðbann á Íran og Líbýu) árið 2001. Hann hefur aftur á móti ráðgjafa að nafni Nemazee, sem er íranskur að uppruna. Kerry sagði í desember að hann yrði sem forseti "prepared early on to explore areas of mutual interest with Iran" (NYT). Ekki eru allir íranskir Bandaríkjamenn ánægðir með þessa skoðun en hún verður þó að teljast skynsamari en þeirra sem vilja halda samskiptum risaveldisins og íslamska lýðveldisins í óbreyttri mynd. (sjá einnig: iraniantrade.org)
Agust skrifaði 12.02.04 02:35
Flokkun: Mið-Austurlönd