febrúar 16, 2004

Helgaruppgjörið

Þetta er búin að vera hin ágætasta helgi. Sótti ráðstefnu Alþjóðabankans og Háskóla Íslands um "þekkingarleit og þróunarmál". Einkar áhugavert umfjöllunarefni.
Ég skrifa kannski eitthvað um ráðstefnuna sjálfa þegar tími gefst til, þar sem ég skrifaði glósur aldrei þessu vant. Á ráðstefnunni hitti ég hinsvegar og talaði við fullt af áhugaverðu og skemmtilegu fólki. Sérlega gaman að tala við fólk sem er að pæla í svipuðum hlutum og maður sjálfur.

Ráðstefnan var í þrjá daga, ef með er talin sýning á heimildamynd á fimmtudagskvöldið. Myndin var sýnd í sal 132 í nýja Náttúruhúsinu. Það lýsir húsinu í hnotskurn held ég að myndlampinn brann þrisvar sinnum yfir.
Föstudaginn og laugardaginn sat ég svo á óþægilegum stól í hátíðasal Háskólans. Hvernig þeim datt í hug að bjóða manni upp á að sitja í tæpa 10 tíma á ráðstefnu, tvo daga í röð, á vondum stólum, með ekkert borð, skil ég ekki. En sem betur fer var maður í svo góðum félagsskap að maður lifði rasssærið af.

Hitchcock-helgin á RÚV var kærkomin. Horfði á Psycho á föstudagskvöldið. Hafði einungis séð "endurgerðina" af henni og frumgerðin var sannarlega margfalt betri. Finnst fullmikið sagt að hún sé 23. besta mynd sögunnar en góð er hún.

Eftir laugardaginn var ég svo úrvinda að ég steinsofnaði eftir matinn og svaf til ellefu. Missti því því miður af Brúðarbandinu á Grandrokk og finnst það fúlt. Horfði þess í stað á Fuglana og Frenzy. Mér finnst Frenzy ein besta glæpamynd allra tíma. Hún gerist líka í London, sem einhvern veginn virkar miklu betri í þriller en amerískur smábær, líkt og í tilfelli Fuglanna. Ég hafði ekki sé Fuglana áður en Frenzy er svo vel gerð að hún stendur undir sínu þótt maður þekki söguþráðinn, nokkuð sem á ekki við alla þrillera.

Dagurinn í dag fór svo í ýmis skyldustörf heima við. Horfði þó á myndina um Helga Hóseasson. Hún hreyfði við manni. Andstæðurnar, andlega truflaður maður sem kveikir í kirkjum og maðurinn sem annast rúmfasta konu sína um alla hluti - meðal hann stendur tímunum saman á götuhorni með mótmælaspjald sem fæstir skilja, til að friða eigin sál.
Agust skrifaði 16.02.04 01:10

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Er hún ekki með z? :).

delmo skrifaði 16.02.04 09:07

Jú það er rétt - afrek hjá mér að skrifa Frenzy með c-i ekki einu sinni heldur þrisvar :)
Búinn að leiðrétta það, takk fyrir ábendinguna.

Ágúst skrifaði 16.02.04 11:54