febrúar 16, 2004
Fjárfestingar erlendis
Nú er ég að hlusta á Jón Scheving Thorsteinsson að flytja fyrirlestur um áhrif EES á viðskiptaumhverfið á Íslandi, séð út frá hans augum sem eins af forvígismönnum Baugs.Það er svolítið skondið að heyra íslenska bissnissmenn tala um reynslu sína af því að kaupa illa stödd fyrirtæki erlendis. Mörg fyrirtæki hafa ætlað sér að sigra heiminn í gegnum kompaní sem þau kaupa á spottprís. Baugar gerði þetta í tilfelli Bonus Dollar Stores í Bandaríkjunum. Fjölmiðlarnir greindu frá 3 milljarða króna tapi af því ævintýri og var það, svo ég vitni í Jón, dýr lærdómur.
Ágúst hjá Bakkavör hélt fyrirlestur hjá okkur í fyrravetur og sagði einmitt að ef það væri eitthvað sem hann hefði lært "the hard way" á fjárfestingum erlendis, þá væri það annars vegar að kaupa aldrei annað en tiltölulega vel stödd og vel rekin fyrirtæki erlendis og hinsvegar að stofna ekki "greenfield" fyrirtæki erlendis. Annars vegar þá væru fyrirtæki yfirleitt illa stödd af ástæðu og annaðhvort hefði maður ekki resource-ana til að bjarga þeim eða að ef maður hefði það, hvers vegna þá að eyða þeim ekki í eigin rekstur. Greenfield-uppbygging er hinsvegar mjög tímafrek og þarfnast mikilla resource-a, auk þess sem að uppbygging fyrirtækja í Frakklandi væri t.d. ekki sterkasta hlið íslenskra fyrirtækja, því væri einfaldlega hagstæðara að kaupa "pakkann" tilbúinn.
Það er alltaf ánægjulegt þegar íslensk fyrirtæki uppgötva grundvallar atriði í viðskiptafræðunum - þó það sé stundum "the hard way".
Agust skrifaði 16.02.04 15:06
Flokkun: Hnattvæðing/Globalisation , Viðskipti