febrúar 17, 2004
Þriðjudagur
Ég harkaði af mér og mætti í Framleiðslustjórnun í morgun. Get ekki sagt að ég hef mætt oft í vetur. Fannst ég ekki græða mikið á þessum tíma. Ofureinföld atriði útskýrð á mjög langdreginn hátt. Ekki einsog þetta sé allt svona lauflétt. Við Hákon lágum yfir heimaverkefni vikunnar í gærkvöldi. Eitt dæmið tók rúma 2 tíma, hin tvö tóku innan við 5 mín. hvert. Tíminn sem þetta flókna var kennt var í síðustu viku. Kannski ekki beint flókið en maður þarf að kunna réttu trixin. Í tímanum í morgun tók hann hinsvegar dæmi upp á töflu þar sem margfaldaðir voru saman tveir dálkar. Er nema von að maður nenni ekki að mæta þegar þetta er eini tími dagsins.Nú fer efnið væntanlega að flækjast, þannig ég stefni á að mæta í tíma. Nema fleiri fari í að margfalda saman tvo dálka, þá held ég haldi mig heima við.
Dagurinn er búinn að vera óvenjugóður, ef miðað er við tæplega þriggja tíma svefn. Var á fullu til fjögur í nótt og kom líka ansi miklu í verk.
Maginn er að lagast en hann lét illa alla síðustu viku og um helgina. Nú er ég með vott af svona pestar-einkennum, smá beinverkir og rugl. Búinn að taka íbúfen síðustu þrjá daga til að slá á þetta. Má engan veginn við veikindum. Menn leggjast í rúmið allt í kringum mig en ég ætla að standa þetta af mér.
Komst að því að ég "græddi" heilan dag í Brussel. Hélt ég færi út á miðvikudaginn í næstu viku en þess í stað er það þriðjudagurinn fyrir átta um morguninn. Hafði eitthvað misskilið planið. Kem svo aftur eftir miðnætti á sunnudagskvöld (eða aðfaranótt mánudags, eftir því hvernig litið er á það). Undir venjulegum kringumstæðum myndi maður fagna þessu. Ég var aftur á móti búinn að gera ráð fyrir að vera heima á þriðjudeginum. Verst finnst mér að missa af síðasta tímanum í arabískunni.
Ef einhver hefur góðar tillögur hvað er nauðsynlegast að gera af sér í Brussel í vinnuferð, þessa tvo daga sem við fáum "frjálsa", má viðkomandi láta mig vita.
Agust skrifaði 17.02.04 18:10
Flokkun: Daglegt líf
Þó að varla sé hægt að gerast túrhestalegri, þá er alltaf klassískt að rölta niður á Grand Place og kíkja í súkkulaðibúðir.
Sumar súkkulaðibúðirnar eru "alvöru", þ.e. búa til súkkulaðið á staðnum eftir eigin uppskrift. Flestar eru þó hluti af einhverjum keðjum. Slíkt getur að vísu haft kosti í för með sér. T.d. má, ef vel er farið að maddömunum í Godiva sjoppunni í horninu á torginu sjálfu, fá þær til að sérbúa fyrir mann páskaegg, svosem með hálfs dags fyrirvara. Svona í ljósi þess að sú tíð er brátt að ganga í garð. Konan mín verður enn dreymin á svip þegar minnst er á hvíta súkkulaðieggið sem ég fékk útbúið hjá þeim í fyrra. Svo eru þær með klippikort: Fimmta hver súkkulaðiaskja er frí.
Að því búnu má t.d. snæða á einhverjum af litlu stöðunum í öngstrætunum í norð-austur út frá torginu. Við Heuvel-stræti, Haring-stræti eða í þá áttina.
Þrátt fyrir að Bruxelles sé athygliverð fyrir margar sakir, þá standa matgæðin óneitanlega upp úr. Því er tilvalið að einbeita sér að þeim syndum, þegar maður staldrar þarna við.
Hörður Helgi Helgason skrifaði 17.02.04 22:40Um eitt virðast allir sammála sem til þekkja, Brussel er borg máltíðanna.
Ó, hve glaður ég er!
Ef einhver veit um massíva bókabúð í Brussel sem sérhæfir sig í social siences bókum má viðkomandi láta mig vita. Mig vantar nokkrar illfáanlegar bækur sem máské gætu fengist í svona alvöru sérbókaverslun. Einhvern veginn held ég að menn í Brussel kaupi svolítið af alþjóðastjórnmála- og hagfræðibókum.
Ágúst skrifaði 18.02.04 00:32