febrúar 18, 2004

Draumurinn úti?

Eftir slétta viku fer ég í gegnum land frelsins, Hollands. Ég hef alltaf séð Holland í hálfgerðum hyllingum. Þar virðast menn hafa meira umburðarlyndi en víðast hvar annars staðar.
Til marks um frjálslyndið veit ég til þess að það var a.m.k. þannig, veit ekki hvort lögin hafa breyst, að sumt þroskaheft og fatlað fólk fékk niðurgreidda kynlífsþjónustu. Hollendingar sáu dæmið einfaldlega þannig að ekki ætti að neita þessu fólki um kynlíf, þar sem möguleikinn var fyrir hendi. Ekki síst var ávinningur í tilfellum t.d. misþroska mann, fullorðinna, fílssterkra manna sem hafa hormónastarfsemi fullorðinna en hugsa ekki sem slíkir. Menn sem höfðu átt til að áreita konur og jafnvel beita þær ofbeldi fengu reglulega "þjónustu", á kostnað almannatryggingakerfisins og árangurinn var í mörgum tilfellum mjög góður. Mennirnir létu af áreitinu og allir voru sáttir, karlarnir voru fullnægðari, konurnar óáreittar og portkonurnar fengu salt í grautinn (þær hollensku eru einmitt með opinber stéttarfélög, nokkuð sem væri óhugsandi víðasthvar).
Vandamál? Mögulegar lausnir? Framkvæmdar - kreddulaust.

Hollendingar hafa líkt og margar aðrar þjóðir haft tiltölulega opið innflytjendakerfi. Nú hefur almenningur hinsvegar séð innflytjendur sem vandamál. Hvað er gert? Mögulegar lausnir skoðaðar út frá rökum og skynsemi, líkt og Hollendingar virðast hafa getað gert hingað til með góðum árangri og staðið vörð um frelsi borgaranna? Nei. Losum okkur við sem mest af þessu innflytjendapakki og læsið á eftir þeim.
Tuttugu og sex þúsund innflytjendur, sumir hverjir tala ágæta hollensku og eru farnir að festa rætur í landinu með fjölskyldur sínar. Aðrir hafa hvorki lært hollensku né að aðlagast hollensku samfélagi, einsog gengur.
Nýfasistinn Pim Fortuyn hlýtur að ganga aftur af ánægju yfir þessu öllu.
Agust skrifaði 18.02.04 00:38

Flokkun: Heimspeki , Hnattvæðing/Globalisation , Mannlíf á jörðu , Stjórnmál
Comments
Nýfasistinn Pim Fortuyn hlýtur að ganga aftur á ánægju yfir þessu öllu

Af hverju segir þú að Pim Fortuyn hafi verið nýfasisti? Vegna þess að hann vildi stemma stigu við komu fordómafullra öfgamúslima sem ólu á fordómum gegn samkynhneigðum. Verða menn sjálfkrafa nýfasistar ef þeir láta uppi skoðanir gegn slíkum hópum?

The Big Lie

The bitter pill was yet to come for the Dutch. As the world's media started to report on the tragedy came more disbelief: Pim Fortuyn was being described by the world press as a "Hard Right winger", "The Dutch LePen", "anti-muslim", "Racist". The only correct description I read or heard was "Populist". That Pim was indeed.

Vissulega geta verið skiptar skoðanir um Pim Fortuyn, en fólk sem ég hitti og búið hefur í Hollandi var forviða á þessu tali um öfgahægrimanninn Pim Fortuyn. Hugsanlega býrð þú yfir betri upplýsingum.

Matti Á. skrifaði 18.02.04 09:37

Já, ég skal viðurkenna að þetta er ósanngjarnt af mér. Nýfasisti er of sterklega kveðið.

Það má reyndar líka segja að það sé ósanngjarnt af mér að lýsa þessu sem einhverju sem Fortuyn hefði fagnað. Sumir, sem þekkja vel til hollenskra stjórnmála - ólíkt mér, vilja meina að þetta séu mun harðari lög en Fortuyn hefði sjálfur viljað sjá.

Fortuyn sýnir e.t.v. ágætlega sjálfur að Hollendingar eiga enn til frjálslyndi og afskiptaleysi gagnvart prívatmálum nágrannans. Hvar annars staðar hefði maður hlotið slíkt fylgi, eftir að hafa lýst getu sinni til að vita hvaða rauðsín elskhugar sínir hefðu drukkið, af bragðinu af sæði þeirra.

Ágúst skrifaði 18.02.04 12:40

hey Holland rokkar.... tad er yndislegt ad lifa i svona miklu frjalsraedi. Allir eru tvilikt opnir. Med innflytjendurnar ta er alveg mjog mikid af teim sem eru ekki ad gera neitt...lifa bara i gettoinu a baetum og Hollendingar sjalfir eru hraeddir ad fara tanngad tar sem teir bua tvi teir terrorasadir fyrir ad vera ekki litadir.

sigga skrifaði 23.02.04 14:21