febrúar 19, 2004
BS
Á morgun á ég að fara á fund og kynna BS-ritgerðina mína. Hugmyndir mínar um BS-ritgerðina réttara sagt. Hvað ég ætla að skrifa um, hvað ég er búinn að gera, hvað ég ætla að gera o.s.frv. Mér líður best þegar ég hef slæðusýningu í bakgrunninum, þannig ég er búinn að henda upp punktum í PowerPoint.Nú eru 64 dagar þangað til ég skila uppkasti að ritgerðinni til leiðbeinandans. Lokaeintakið skal vera tilbúið sléttum fjórum vikum eftir það.
Ég er virkilega farinn að hlakka til að lesa þessa ritgerð :-)
Agust skrifaði 19.02.04 01:12
Flokkun: Daglegt líf
Comments
Galdurinn við lokaritgerðir tel ég vera, nú þegar ég þarf að fara að byrja að huga að minni annarri slíkri, í raun aðeins einn: Byrja snemma og skrifa eitthvað á hverjum degi. Tvær eða þrjár blaðsíður. Sama þótt það reynist lítt nothæft á endanum.
Lokaritgerðir eiga að vera vel þjálar. Umskrifaðar. Ekki einungis fyrsta eða annað uppkast.
Svo örvar þetta líka svo skrifvöðvann, að pína sig til að láta á hann reyna svolítið daglega.
Hörður Helgi Helgason skrifaði 20.02.04 01:04