mars 17, 2004

Viel Betrieb

Það er búið að vera mikið að gera. Með góðum rökum mætti segja of mikið að gera. Með önn betri rökum mætti segja að mikilvægir hlutir hafi þurft að vera settir í salt. Verst finnst mér að vanda að komast ekki yfir þær djúsí greinar sem birst hafa síðustu vikur. Ég t.d. get ekki beðið að lesa nýju Huxington-greinina í FP.

Þrátt fyrir þessar annir, sem mér leiðast svosem ekki, stutt í stressfíkilinn í manni, þó hef ég gert tvennt í vikunni sem ég hef ekki gert í langan tíma:
Á mánudaginn fór ég í Blóðbankann og gaf blóð. Sökum veikinda og uppskurðar í kjölfarið var ég ekki gjaldgengur blóðgjafi fyrr en á nýárinu. Ég reyndar hélt að ég mætti ekki gefa næst fyrr en næsta haust en það er víst 3ja mánaða blóðgjafarbann en ekki árs langt sem fylgir svona minni aðgerðum. Það var ljúf tilfinning að gefa blóð og ættu auðvitað allir að gera það sem geta.
Hitt sem ég hef ekki gert lengi er að ég fór á hestbak í dag í fyrsta skipti síðan í haust. Í ljósi þess að vorið fer víst í páskafrí um helgina þá nýtti ég blíðuna og skellti mér á bak. Það var einstaklega fallegt veður og gott að anda að sér fersku lofti.
Agust skrifaði 17.03.04 23:33

Flokkun: Daglegt líf