mars 25, 2004

BBC World Service

Nú er ég glaður!

Þegar ég er að vinna í tölvunni hef ég yfirleitt BBC World eða Sky News yfir mér í stað útvarps.

Í rælni skipti ég áðan yfir á "Audio" á afruglarafjarstýringunni. Síðast þegar ég gerði það voru aðeins "safnrásir" í boði (Old Gold, Love Songs, Classic Rock, Nordic Hit og þar fram eftir götunum).
En hvað birtist mér þegar ég skipti yfir á "Audio"? BBC World Service! Útvarpsstöðin sem ég hef grátið síðan misvitrir stjórnendur Norðurljósa lokuðu henni í ágúst á síðasta ári.
Nú eru semsagt komnar fleiri og merkilegri rásir á Breiðbandið: áðurnefnd BBC WS, DR P1, P2 og P3, NRK P1 og P2 og Radio Sweden 1 og 2.

Já, nú er ég glaður. Nú get ég hlustað á alla uppáhaldsþættina mína á BBC WS sem ég hef saknað sárt, allt frá Newshour til Outlook til Everywoman.
Agust skrifaði 25.03.04 18:14

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Samgleðst þér!

Sigga Loga skrifaði 25.03.04 19:39