mars 31, 2004
Skilgreiningarvandi þróunarríkja
Fyrr í vetur birtist lítill greinarstúfur í Economist, What's in a name?, sem fjallaði um vandann við að skilgreina ríki út frá hugtökunum sem notuð eru til að tilgreina hversu þróuð þau eru. Einsog segir í Economist:FOOTBALL fans care passionately about whether their home team is in the first, second or third division. Countries feel the same about their economic ranking. Ten years ago this month, The Economist launched its emerging-market indicators page, and still by far the most popular question asked by readers is how we decide whether an economy should be listed as “developed” or “emerging”.Hugtakið þróunarlönd er vandræðahugtak. Í ensku eru þessi hugtök sem notuð ruglandi en þó ekkert á við íslenskuna sem einsog svo oft áður skellir nokkrum hugtökum saman í eitt.
Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 23:39
| Comments (4)
Flokkun: Afríka , Development , Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation
Flokkun: Afríka , Development , Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation
mars 30, 2004
Narcissismi
Úr Stardust [Memories] e. Woody Allen."Your films are always psychological, never political. Where do you stand politically?"
Sandy (Woody Allen): "What can I say to that? I'm for total, honest democracy. You know. And I also believe the American system can work."
_ _ _ _ _ _ _ _ _
"A lot of people have accused you of being narcissistic."
Sandy: "No, I know people think that I'm egotistical and narcissistic, but it's not true. I, as a matter of fact, if I did identify with a Greek mythological character, it would not be Narcissus."
"Who would be?"
Sandy: "Zeus."
mars 29, 2004
Sovétfræðingar að eltast við hryðjuverkamenn
Í tíma í Bandarískum stjórnmálum í dag rifjaðist upp fyrir mér leiðari New York Times frá því á fimmtudaginn, Assessing the Blame for 9/11.Ms. Rice was trained as a Sovietologist. Many of Mr. Bush's other top advisers are also former cold warriors who remained loyal to the agenda of the gulf war era, the early 1990's. Their mind-set did not allow for the possibility of an extranational threat not orchestrated by any one particular government. Once 9/11 happened, they organized an effective attack on Afghanistan, where Mr. bin Laden had been operating, but they then turned their attention to Iraq, a country that no one in Mr. Clarke's operation regarded as an incubator of international terrorism.Athyglisverð kenning.
Ný lög
Nú er það orðið sérstakur glæpur að skaða fóstur með því að ráðast á ófríska konu. Hljómar í sjálfu sér ekki svo vitlaus lagasetning en afleiðingarnar gætu orðið meiri. Deilan miklu um rétt kvenna til fóstureyðinga heldur áfram í Bandaríkjunum og með þessari lagasetningu eru andstæðingar valfrelsis kvenna taldir hafa skorað stig.Sjá frétt BBC: US foetus law sparks abortion row
mars 28, 2004
Þjóðarmorð í Súdan
Nicholas Kristof er staddur á landamærum Súdan og Tsjad (Chad) þessa dagana. Undanfarna viku hefur hann skrifað tvo pistla um þjóðarmorð stjórnarhers Súdan á þjóðflokkum í suðurhluta landsins.Ethnic Cleansing, Again (24/3)
Will We Say 'Never Again' Yet Again? (27/3)
Að auki er Kristof með "video report" á nytimes.com
The Other 9/11
Ég var að horfa á heimildarmynd BBC um "hinn 11. september", altso 11. september 1973 þegar Allende var steypt af Pinochet.Mjög vel gerð heimildarmynd, sem er mjög í stílnum að fá mann til að hugsa en troða ekki í mann skoðunum (líkt og góð kona komst að orði).
Myndinni lýkur á sjónvarpsmyndum frá Santiago á áttunda áratugnum með Day Is Done með Nick Drake spilandi undir. Áhrifaríkt.
When the day is done / Down to earth then sinks the sun / Along with everything that was lost and won [...] Hope so much your race will be all run / Then you find you jumped the gun / Have to go back where you began / When the day is done.
Í myndinni er rætt við marga sem voru á staðnum og segja frá atburðarásinni frá fyrstu hendi. Fléttað er saman frásögnum aðila frá báðum hliðum þannig úr verður trúverðug heild en auk þess er þulur sem segir frá.
Merkilegur atburður í sögu Suður-Ameríku sem myndin gerir ágætlega skil. Þar sem hún fjallar aðeins um 11. september 1973 segir hún ekki frá þeim tæpu tveimur áratugum af junta-stjórn sem fylgdi í kjölfarið, enda er það önnur og lengri saga. Í myndinni er blandað saman viðtölum og gömlum sjónvarps- og útvarpsupptökum og úr verður áhugaverð heild sem skýrir atbuðrarásina ágætlega fyrir áhorfendum.
Þátturinn verður næst endursýndur upp úr klukkan sex í dag.
mars 27, 2004
Allt er nú til
Journalinn American Communist History hefur komið út í tvö ár. Tímaritið kemur út tvisvar sinnum á ári og meðal titla í nýjasta tölublaðinu eru Rethinking the historiography of United States communism og The history of American communism and our understanding of Stalinism.Já, allt er nú til.
Þess má geta að Ásgeir Jónsson hagfræðidoktor skrifaði í Hagmál í jan. '02 um tilraunastarfsemi Bandaríkjamanna í kommúnisma: Þegar Bandaríkin voru bólusett gegn kommúnisma
mars 26, 2004
Fylgirit Morgunblaðsins í dag
Hafi fólk skoðun á fylgiriti Morgunblaðsins í dag er því frjáls að tjá mér hana :)mars 25, 2004
BBC World Service
Nú er ég glaður!Þegar ég er að vinna í tölvunni hef ég yfirleitt BBC World eða Sky News yfir mér í stað útvarps.
Í rælni skipti ég áðan yfir á "Audio" á afruglarafjarstýringunni. Síðast þegar ég gerði það voru aðeins "safnrásir" í boði (Old Gold, Love Songs, Classic Rock, Nordic Hit og þar fram eftir götunum).
En hvað birtist mér þegar ég skipti yfir á "Audio"? BBC World Service! Útvarpsstöðin sem ég hef grátið síðan misvitrir stjórnendur Norðurljósa lokuðu henni í ágúst á síðasta ári.
Nú eru semsagt komnar fleiri og merkilegri rásir á Breiðbandið: áðurnefnd BBC WS, DR P1, P2 og P3, NRK P1 og P2 og Radio Sweden 1 og 2.
Já, nú er ég glaður. Nú get ég hlustað á alla uppáhaldsþættina mína á BBC WS sem ég hef saknað sárt, allt frá Newshour til Outlook til Everywoman.
Þegar terror stal kosningunum
Thomas Friedman skrifar í NYT í dag, No Vote for Al Qaeda:[M]y analogy: The Israeli-Palestinian conflict is to the war on terrorism what the Spanish Civil War was to World War II. The Israeli-Palestinian conflict is where airline hijacking, suicide bombing and assassinations with helicopter-mounted guided missiles were all perfected and made ready for export.©2004 The New York Times Company
But it's not only types of violence that were perfected there. It was also there where Palestinian terrorists regularly attempted to hijack democratic elections on the eve of the vote. Liberal Labor Party candidates in Israel, throughout the 1980's and 1990's, always had to hold their breath that there would not be a big terrorist attack on the eve of an election. Because if there was, swing voters would usually move to the right and the Likud candidate would benefit. The Palestinian terrorists always "voted" Likud, not Labor. They wanted hard-liners at the helm in Israel because they would build more settlements and further radicalize and destabilize the situation.
In 1996, shortly after the murder of Yitzhak Rabin, Shimon Peres was leading Bibi Netanyahu by 20 points in opinion polls. Then Islamic terrorists unleashed bus bombings, killing 59 Israelis. Mr. Peres saw his lead wiped out, and then lost the election by a tiny margin. Suicide bombing totally undermined Labor's Ehud Barak and helped elect Ariel Sharon in 2001. So terrorists have been voting in Israel's elections for a long time.
What the Madrid bombings, just before the Spanish elections, represent is the Islamist terrorists' first attempt to hijack a democratic election in Western Europe.
Kínverskir ferðamenn
Kínverskir ferðamenn eða öllu heldur týndir kínverskir ferðamenn hafa verið í fréttunum undanfarið á Íslandi. Svo virðist sem kínverskir fólkssmyglarar hafi notað Ísland sem tengingu til að smygla Kínverjum til Evrópu. Þykir málið neyðarlegt fyrir íslensk yfirvöld.Í dag fjalla Stiklur, vefrit viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins um málið: Búist við fjölgun kínverskra ferðamanna til Íslands
mars 23, 2004
Eiginhagsmunagæsla stúdenta
Í gær, mánudag, mótmæltu stúdentar við Suðurgötuna og búuðu á rektor sinn fyrir að vilja ræða "heimild til innheimtu skólagjalda". Ekki er á verðandi hátekjufólk leggjandi að taka fjárhagslega ábyrgð á menntun sinni (og þar með fá að öllum líkindum betri menntun), heldur skal allur Háskólinn standa gegn því að einu sinni ræða málið - einn fyrir alla og allir fyrir einn. Sjálfsagt ekki til það málefni þar sem Árnagarður og VR-búar vestan Suðurgötunnar standa jafn þétt saman.Hjalti Snær Ægisson, prófarkalesari, lýsti mótmælunum með snilldarlegum hætti:
Í dag söfnuðust nokkrir vaskir stúdentar fyrir framan aðalbyggingu HÍ til þess að mótmæla skólagjöldum. Félagi minn var þar viðstaddur og sagði mótmælin hafa verið velheppnuð; allir voru einhuga í baráttunni gegn þessum fjárkúgunartilraunum ríkisstjórnarinnar sem myndu aðeins hafa í för með sér aukinn skort og basl fyrir stúdenta Háskólans. Var það ályktun fundarins að skólagjöld væri bara til þess fallin að fella nemendur úr hor og ræna þá sem minnst mega sín. Að fundi loknum kvöddust allir mótmælendurnir, öxluðu fartölvuna sína, tóku kristalsskjáagemsann sinn af „silent,“ seildust í bíllykilinn, tóku þjófavörnina af bílnum og óku annað hvort heim eða í Planet Pulse.Textinn er birtur án leyfis höfundar.
Málfrelsi?
May I See Your ID?, Nicholas Kristof:The other area where I'd like to see a tougher approach has to do with "cookbooks" to make anthrax, sarin and other chemical, biological or nuclear weapons. Over the last few years, I've collected a horrifying set of booklets, typically sold at gun shows or on the Internet, detailing how to make mustard gas, VX, anthrax or "home-brew nerve gas."Góður pistill hjá Kristof (varanlegri linkur á IHT).
"One of the greatest feelings in the world is knowing you have the technology to wipe out your whole neighborhood," one booklet declares.
mars 22, 2004
Sjeik Yassin
Morgunfréttir Ríkisútvarpsins vöktu mig í morgun. Illa brá mér við að heyra fréttir af morðinu á sjeik Ahmed Yassin.Þegar fréttir bárust af tilræði Ísraela við Yassin fyrir nokkru kom það mér á óvart. Þannig hefðu fréttirnar í morgun ekki átt að koma manni á óvart en þær gerðu það samt. Þetta er svo ótrúlega óábyrgt. Maður skilur ekki lógíkina að baki þessu.
Það eru enn blóðugri vikur fram undan í Palestínu, það er nokkuð ljóst.
mars 17, 2004
Viel Betrieb
Það er búið að vera mikið að gera. Með góðum rökum mætti segja of mikið að gera. Með önn betri rökum mætti segja að mikilvægir hlutir hafi þurft að vera settir í salt. Verst finnst mér að vanda að komast ekki yfir þær djúsí greinar sem birst hafa síðustu vikur. Ég t.d. get ekki beðið að lesa nýju Huxington-greinina í FP.Þrátt fyrir þessar annir, sem mér leiðast svosem ekki, stutt í stressfíkilinn í manni, þó hef ég gert tvennt í vikunni sem ég hef ekki gert í langan tíma:
Á mánudaginn fór ég í Blóðbankann og gaf blóð. Sökum veikinda og uppskurðar í kjölfarið var ég ekki gjaldgengur blóðgjafi fyrr en á nýárinu. Ég reyndar hélt að ég mætti ekki gefa næst fyrr en næsta haust en það er víst 3ja mánaða blóðgjafarbann en ekki árs langt sem fylgir svona minni aðgerðum. Það var ljúf tilfinning að gefa blóð og ættu auðvitað allir að gera það sem geta.
Hitt sem ég hef ekki gert lengi er að ég fór á hestbak í dag í fyrsta skipti síðan í haust. Í ljósi þess að vorið fer víst í páskafrí um helgina þá nýtti ég blíðuna og skellti mér á bak. Það var einstaklega fallegt veður og gott að anda að sér fersku lofti.
mars 08, 2004
Sköllum fækkar
Nú hafa Grikkir kosið yfir sig íhaldsmann í stað hins sköllótta sósíalista Georgs Papandreou. Þar með hefur sköllóttum leiðtogum Evrópu fækkað verulega.[Viðbót: Georg Papandreou er fráfarandi utanríkisráðherra Grikklands. Fráfarandi forsætisráðherra er Kostas Simitis sem einnig er nauðasköllóttur. Papandreou er hefur aftur á móti verið titlaður leiðtogi sósíalista í nýafstöðnum kosningum.]
Berlusconi er líklegast sá frægasti sem eftir er. Chirac hefur þynnst á toppnum síðan hann varð fyrst forseti og telst seint hárprúður. Þeir eru báðir um sjötugt. Tony Blair, Schröder kanslari og Aznar forsætisráðherra Spánar eru allt mjög hárprúðir menn. Enginn er þó hárprúðari en Davíð okkar Oddsson.
Lesa áfram
Undanfarið
Undanfarið hefur ýmislegt á daga mína drifið. Ég hef hinsvegar haft of mikið að gera, of mikinn mat til að borða eða verið of veikur til að skrifa um það á þessum vettvangi.Dagana 24. til 29. febrúar var ég í Brussel. Daginn eftir að ég kom heim svaf ég næstum allan eftir að hafa komið heim um nóttina. 2. til 4. mars var of mikið að gera hjá mér að skila af mér ákveðnu verki til að ég héldi upp á afmælið mitt þann 3ja með viðeigandi hætti. Að lokum var árshátíð Visku 5. mars. Þá var ég farinn að kvefast all rækilega en skemmti mér hinsvegar vel og man vart eftir því að hafa dansað jafn mikið. Um helgina lág ég síðan í bælinu með kvefpest og hita og nú á mánudegi er ég of slappur ennþá til að fara út úr húsi.
Rúmeskar andaveiðar
Eftir þrjú ár mun Rúmenía verða hluti af Evrópusambandinu.Þessi frétt frá BBC er nokkuð skúkí: Death rite unnerves Romanian EU bid
The regions of Transylvania and Wallachia were "haunted by ancestral ghosts, evil spirits, and vampires"; medieval beliefs that were "at odds with sophisticated EU rules on measuring fruit and the size of bananas".Segir í fréttinni og þarna er vitnað í frétt blaðsins Evenimentul Zilei.
Europe's preoccupations and debates, the paper said, were "totally out of tune with Romanian realities, where local barons make the law, enjoy privileges and export children to get favours from important people" in a "medieval fashion".Það er reyndar staðreynd að Rúmenía hefur staðið sig frekar illa við að uppfylla skilyrði ESB sem landið þarf að uppfylla fyrir aðild sína að sambandinu. Norðurhluti landsins er svo alveg sér kapituli út af fyrir sig og svosem ekki nema eðlilegt að margir innan sambandsins setji stór spurningarmerki við aðild þessa lands sem á köflum virðist vera líkt og á öðru tímaskeiði en vestari hlutar álfunnar.
It describes Romania as a land of "sold girls" and "Romany kings fighting over gold coins", where pre-Christian faiths endure in spite of "internet cafes opened in villages in the old communist culture houses".
"If we continue to work for our European accession, we will not even be able to beat our wives and children to death anymore," [The national newspaper] Ziua commented with irony.
"Your films are always psychological, never political. Where do you stand politically?"