apríl 01, 2004
Regnhlífaveður
Í dag rigndi reiðinnar býsn. Þess vegna fór ég vopnaður regnhlíf þegar ég þurfti að útrétta svolítið um hádegisbilið.Fyrst var ég eini maðurinn með regnhlíf þegar ég fór á milli staða í miðbæ Hafnarfjarðar. Fékk skringilegar augngotur frá manni sem var að grafa skurð og lítil stelpa með móður sinni glápti á mig einsog hún hefði aldrei áður séð neitt þessu líkt.
Næst þurfti ég að renna vestur á Eiðistorg og var nokkuð af fólki þar. Aftur var ég eini maðurinn sjáanlegur með þurran jakka undir regnhlíf og kona með niðurrignt hár setti í brý[n]nar þegar ég mætti henni.
Ég hef áður talað um skort Íslendinga á regnhlifa-kúltúr. Það er ennþá horft á fólk með regnhlífar á Íslandi (utan 17. júní og Gay Pride) einsog villuráfandi útlendinga. Flestir virðast ennþá halda að rigningin sé alltaf lárétt á Íslandi en það er misskilningur. Merkilegt oft er hægt að nota regnhlíf á Íslandi, ekki síst þar sem byggingar veita aukið skjól fyrir mesta vindinum og þó aðeins hreyfi vind þarf litla æfingu til að kunna að beita regnhlífinni rétt. En í dag var t.d. nánast logn í rigningunni og því engin ástæða til að gegnblotna við að rölta á milli húsa og bílastæða.
Agust skrifaði 01.04.04 17:40
Flokkun: Daglegt líf
Fróðleiksmoli: Í raun er frasinn 'setti í brýnnar'. Rétt ft. af brún er ekki brýr heldur brýn, sbr. mús og mýs. Þetta vita þó fáir og þess vegna nota margir hina ungu fleirtölumynd brúnir í stað þess að segja augabrýn (eða augnabrýn).
Ármann skrifaði 01.04.04 19:26Takk fyrir þetta. Ég hélt reyndar það væri "augabrúnir" í flt. Hinsvegar þorði ég ekki annað en að fletta þessu upp í Google áður en ég birti færsluna. Fann "setti brýrnar" á vef Alþingis, þar sem ISG veitir andsvar. Tók það gilt.
Þessar blessuðu brýr hef ég heldur aldrei skilið. Var farinn að halda að þetta væri einhver málfræðilegur undanvillingur líkt og t.d. frasinn "að vera kominn á steypirinn", sem er svo augljós þágufallssýki að ég kippist við hvenær sem ég heyri það.
En í framtíðinni skal ég gæta þess að setja í brýnnar.
Ágúst skrifaði 01.04.04 19:35Hvað veit ISG?
Þetta með steypirinn er raunar ekki þágufallssýki heldur gömul tilraun almennings (frá 17. til 19. aldar) til að endurtúlka r-ið í orðum eins og læknir og hellir sem stofnlægt (læknir-um læknir); þetta var orðið ráðandi í íslensku máli þegar stafsetningar- og málfræðikennsla eyddu því í upphafi 20. aldar. Hins vegar lifir það í þessu orðtæki.
Ármann skrifaði 01.04.04 19:57Regnhlífakúltúr Íslendinga myndi batna um heilan helling ef fólk áttaði sig á því að regnhlífar eru tól til að taka augu úr fólki ef ekki er rétt haldið á spöðunum. Sem sagt, endilega notaðu regnhlíf, en hafðu auga á augum náungans.
Iðunn skrifaði 05.04.04 10:59