apríl 03, 2004

Back in the USSR

Í morgun fór ég í próf í Bandarískum stjórnmálum og viðskiptaumhverfi. Ég er hæfilega pissed yfir prófinu. Því meira sem ég hef melt prófið eftirá sé ég betur hvað ég hefði getað gert betur.
Til að bæta gráu ofan á svart semi-féll ég á tíma. Þar sem prófið var 80% skriflegt og ég handskrifa eins hægt og skjaldbaka kom það enn á ný niður á mér. Maður verður bara að vona það besta. Skrifaði næstum af mér puttana en náði samt ekki viðmiðunarlengdinni átta síðum.
Er samt svekktur að klúðra prófi sem ég átti að taka léttilega upp á níu. Extra svekkjandi þegar maður kann efnið vel að klúðra möguleikum sínum sjálfur. Prófið var sanngjarnt. Ég kunni efnið. Ég bara náði ekki skila mínu.
Pirr!
Agust skrifaði 03.04.04 18:31

Flokkun: Daglegt líf