apríl 04, 2004

Cato verðlaunar Hernando de Soto

Einn besti talsmaður eignaréttarins, perúski hagfræðingurinn Hernando de Soto, sem skrifaði m.a. skyldulesninguna Mystery of Capital, hefur verið heiðraður af Cato Institute. Stofnunin veitir annað hvert ár The Milton Friedman Prize for Advancing Liberty og hlýtur de Soto verðlaunin núna. Þetta er í annað skiptið sem verðlaunin eru veitt en fyrstur fékk Peter Bauer verðlaunin 2002.

Kenningar de Sotos, sem hann setur m.a. fram í Mystery of Capital, ganga út á að eitt af helstu vandamálum þróunarlanda sé að eignarétturinn er vanvirtur. Sem gott dæmi er í fæstum þróunarlöndum mögulegt fyrir fólk að fá viðurkennda eign sína í húsum sínum, hversu fábrotin sem þau kunna að vera. Þarna liggja milljarðar dollara í "dauðum capital". Ef þetta capital væri virt og fólk gæti t.d. fengið lán út á eignir sínar væri möguleikar þess til nýsköpunar margfalt meiri. Í sömu bók kynnir hann líka rannsóknir stofnuninnar sem hann stofnaði í Perú, Institute for Liberty and Democracy, á hversu langan tíma taki í ýmsum þróunarríkjum að fá opinber leyfi fyrir t.d. að byggja hús, kaup land, stofna fyrirtæki etc.
Það er fáir hagfræðingar sem hryðjuverkasamtök hafa reynt að ráða af dögum. Hinn skínandi stígur, perúsku uppreisnarsamtökin sem Fujimore gekk á milli bols og höfuðs á á 10. áratugnum og heyra nú næstum sögunni til, reyndi tvívegis að ráða de Soto af dögum.

Kenningar de Sotos og þekking hans hafa orðið til þess að m.a. Arroyo forseti Filippseyja, Gamel Múbarak, sonur Egyptalandsforseta og formaður Stefnumótunarnefndar stjórnarflokksins egypska, hafa þegið ráð hans en bæði Filippseyjar og Egyptaland fengu slæma útreið í rannsóknum de Sotos. Verið er að vinna að miklu umbótum eignaréttinum til framdráttar í Egyptalandi, að nokkru leyti eftir kenningum de Sotos.
Agust skrifaði 04.04.04 18:22

Flokkun: Development , Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation , Stjórnmál , Viðskipti