maí 05, 2004

The Lady's not for turning

Spectator er blað sem ég gleymi alltaf að lesa. Svona u.þ.b. rekst ég inn á síðu blaðsins og finn þá iðulega nokkrar greinar við mitt hæfi. Gleymi svo að lesa það mánuðum saman og þegar ég rekst á einhvern link á blaðið rifjast alltaf upp fyrir mér að ég þurfi að lesa það oftar.

Í gær voru 25 ár síðan Margrét Thatcher vann fyrst sigur á Verkamannaflokknum í Bretlandi. Fyrr í vikunni voru reyndar 7 ár síðan að Tony Blair vann sögulegar kosningar.

Spectator birti grein um frúnna, sem er vel lestursins virði. Það er í tísku að atast út í hina 79 ára gömlu barónessu en Spectator fer a.m.k. kurteisum orðum um hana: Thatcher bounces back

Læknar hafa bannað þeirri gömlu að flytja opinberlega ræður en frúin sem stærði sig af því að þurfa aðeins 5 tíma svefn hefur átt erfitt með að sætta sig við slíkar hömlur. Hún ætlar að flytja skrifstofur sínar í þingið og taka aukinn þátt í Lávarðadeildinni. Hún hefur verið að jafna sig af minniháttar heilablóðfalli og fluttu ræðu í veislu sér til heiðurs í tilefni að 25 ára júbbíleiunu.
Agust skrifaði 05.05.04 16:38

Flokkun: Meðmæli , Saga , Stjórnmál