maí 09, 2004
Besta og um leið einfaldasta túnfisksalat í heimi
Í dag bjó ég til besta og um leið einfaldasta túnfisksalat í heimi (a.m.k. held ég því fram). Túnfisksalatið mitt hefur líka þann mikla kost að vera rammhollt.Uppskriftin hljómar einhvern veginn svona:
Hið danska Flygenring túnfisksalat
1 dós af ORA túnfiski í vatni
- kreista allt vatnið úr dollunni, annars verður salatið slepjulegt
1 lítil dós af Kotasælu
2 msk. af létt majonesi (fyrir bættan "smurleika" á brauð)
gular baunir [sem sumir vilja kalla maís] úr dós (ORA) eftir smekk, meira er betra
kóríander eftir smekk (ferskt ef til er)
Þetta er einfaldasta útgáfan, þegar tækifæri gefst og nenna má bæta við (allt smáttsaxað) lauk (eða rauðlauk), radísum, steinselju, pipar (ef vill) og jafnvel smá hvítlauk.
Hræra í skál og smyrja ofan á gróft brauð - t.d. sólkjarnabrauð. Þarf að smyrja mjög þykkt á brauðið, enda salatið frekar gróft.
Stærstu kostirnir við salatið eru augljóslega að það sama og ekkert majones, engin egg og maður finnur túnfiskbragð af því, ekki bara majoness/eggjabragð einsog svo oft. Mér finnst alveg grundvallaratriði að hafa gular baunir í túnfisksalatinu mínu og kóríanderinn stendur alltaf fyrir sínu (ég vil hafa vænan slatta af honum). Rammhollt, tekur 5 mín. í framleiðslu. Hægt að geyma í ísskáp þangað til daginn eftir (venjulega klárast það fyrir þann tíma).
ps. Af hverju er sallat vitlaust skrifað í íslensku? Sallat er framborið með tveimur ellum. Asnalegt.
Agust skrifaði 09.05.04 22:47
Flokkun: Matur og vín
Comments
Væri það ekki borið fram [pun intended] sem 'sadlat' eins og kallar, hallar, sallar, páll, háll etc ?
sigga skrifaði 10.05.04 15:31lol - sigga you stole my words ;)
vera skrifaði 10.05.04 18:15