maí 16, 2004
Slavóvisjón?
Týpískt, ég læt af andúð minni á Júróvisjón, mæti í Júróvisjón grillpartý, kominn í stemmningu og hvað gerist? Jónsi syngur falskt (fór út af sporinu a.m.k. 6 sinnum) og Söngleikur Hrafns Gunnlaugssonar vinnur. Í öðru sæti lenti svo Serbi sem enginn í okkar grillpartýi mundi hvernig hljómaði.Rúmenska lagið fékk stig, sem út af fyrir sig er skandall. Kynþokkalausasta smekkleysa sem sést hefur austan Alpafjalla.
Júróvisjón frá Tallin til Istanbúl til Kænugarðs (nema Úkraínumenn geri líkt og Tyrkir og haldi keppnina utan höfuðborgarinnar). Skemmtilegt. Lítt þekkt lönd í austri fá tækifæri til að sýna túristakynningar á milli laga. Verst að áhorfið mun hugsanlega minnka, núna þegar "siðmenntuðu" Vestur-Evrópuþjóðirnar vinna ekki.
Slavóvisjón?
Gáfu Austur-Evrópuþjóðirnar allar hverri annarri atkvæði? Ef við lítum t.d. á íslensku atkvæðin, sem voru skv. fréttum átt í 40 þús, sést að Spánn fékk 1 stig, UK 2 stig og Svíþjóð 8 stig. Önnur atkvæði Íslendinga voru til austrænna þjóða (þ.m.t. Grikkir sem fengu 6 stig). Ronja ræningjadóttir Gunnlaugssonar fékk 12 stigin.
Norðmenn, sem lentu í neðsta sæti gáfu Íslendingum 5 stig, sænskum nágrönnum sínum 12 stig og Þjóðverjum 1 stig. Önnur atkvæði fóru austur á bóginn.
(Úrslitin er aðgengileg á Eurovision.tv)
E.t.v. væri nær að tala um austursamsæri frekar en slavneskt. Slavneskt/tyrneskt/grískt samsæri, það var þá!
Tónlistarsmekkur Evrópumanna er líklegast bara svona lélegur, eða fólks yfirhöfuð. Það er a.m.k. mun líklegra en að Austur-Evrópumenn hafi ákveðið að standa saman í söngvakeppni hvítu jakkafatanna.
Sumar samsæriskenningarnar stóðust, aðrar ekki. Tyrkir fengu sín 12 stig frá Þjóðverjum, Grikkir gáfu Kýpverjum 12 stig og Kýpverjar svöruðu í sömu mynd. Svíar fengu 12 stig frá Finnum, Dönum og Norðmönnum. Svona gengur þetta.
Athyglisvert er að sjá hvaða Evrópulönd keppa ekki í Júróvisjón.
Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland taka ekki þátt, smáríkin Lúxemborg (kepptu þeir ekki áður fyrr?), Lichtenstein, San Marínó og Páfagarður (yrði athyglisvert) eru ekki með en Andorra og Mónakó tóku þátt í ár. Moldóva, fátækasta land álfunnar, og þótt víðar væri leitað, tekur ekki þátt, skiljanlega kannski.
Íslendingar ættu ekki að skammast sín fyrir að ganga í lið með þessum ágætu menningarþjóðum og sleppa að taka þátt á næsta ári. Peningana má nota í margt skynsamara, t.d. taka Jón Ólafsson og flygilinn hans aftur á dagskrá. Gísli Marteinn getur lýst prógramminu úr Efstaleitinu.
Agust skrifaði 16.05.04 22:28
Flokkun: Menning
Það er ekki bara að Luxemburg hafi tekið þátt heldur hafa þeir sigrað í þessari keppni 5 sinnum.
Óli Njáll skrifaði 17.05.04 00:39Hvaða fordómar eru þetta! Á hverju byggirðu það að austur-evrópskt froðupopp sé verra en vestur-evrópskt? Þessi lönd eiga sér einmitt langa og glæsilega tónlistarsögu. Svo er það líka eðlilegt að nágrannar gefi nágrönnum stig enda tónlistarsmekkurinn oft skyldur. Við verðum bara að sætta okkur við það að Norðurlönd eru eftir fall múrsins að verða að fjarlægu horni Evrópu. Miðjan hefur færst austur.
Ingibjörg Stefánsdóttir skrifaði 17.05.04 07:24Ég sagði aldrei að austur-evrópska froðupoppið væri verra en það vestur-evrópska, það er jafnvont. Enda sagði ég:
"Tónlistarsmekkur Evrópumanna er líklegast bara svona lélegur, eða fólks yfirhöfuð. Það er a.m.k. mun líklegra en að Austur-Evrópumenn hafi ákveðið að standa saman í söngvakeppni hvítu jakkafatanna."
M.ö.o. þá hafa ALLAR Evrópuþjóðirnar svona lélegan smekk að því er virðist og kjósa Ronju og hitt ruslpoppið hver í kapp við aðra. Spánverjar gáfu t.d. framlagi Rúmena megnið af stigunum sem það fékk, sem er sem fyrr segir með því verra sem sést hefur - ever!
Ef þú lest líka aftur yfir það sem ég skrifaði myndirðu rekst á setningarnar "Júróvisjón frá Tallin til Istanbúl til Kænugarðs[.] Skemmtilegt. Lítt þekkt lönd í austri fá tækifæri til að sýna túristakynningar á milli laga."
Ég hef ekkert á móti þessari "þróun" sem slíkri. Það sem ég var hinsvegar að reyna að benda á er að þetta er engri þróun um að kenna, heldu einfaldlega lélegum smekki evrópskra sjónvarpsáhorfenda.
Ég hallast á sveif með þér. Vel skrifað.
Binni skrifaði 17.05.04 13:18