maí 20, 2004

Ríkisstyrkir til landbúnaðar

Það getur verið gott að setja tölur í samhengi.

Evrópusambandið eyðir 51 milljarði dala (43 milljörðum evra). (src)

Heildarframlag þjóða heimsins til þróunarsamvinnu var 58 milljarðar dala 2003 skv. tölum Alþjóðabankans, 52 milljarðar 2002.

Ríkisstyrkir til landbúnaðar í Bandaríkjunum voru 21,5 til 23,5 milljarðar dala á ári árin 1998 til 2001. Árið 2002 námu styrkirnir aðeins 12.150 milljónir dala. Meðalgreiðsla á tímabilinu 1998-2001 var 12 þús. dalir per bónda (src). Það er svipað og VLF Slóvaka.
36 milljónir íbúa Tanzaníu lifðu á samtals 20,4 milljörðum dala.

Bandarískir búmullarbændur fá rúma 2 milljarða í styrki á ári (src). Það er rúmlega tvöfalt hærri upphæð en 1360 þúsund íbúar Guineu-Bissau lifa á eða litlu lægri upphæð en 3 milljónir íbúa Kongó-Brazzaville lifa á.

Bómullarbændur í Bandaríkjunum eru um 25 þús. Þeir fá rúma 80 þús. dali að meðaltali. Það er ekki óalgengar árstekjur 100 manna í Afríku (sem væru þá yfir fátæktarmörkum skv. skilgreiningunni).
Agust skrifaði 20.05.04 13:04

Flokkun: Afríka , Ameríka , Development , Evrópusamvinnan , Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation