maí 26, 2004
Út
Upp úr hádegi á morgun flýg ég til Trieste á Norður-Ítalíu. Verð í Króatíu til 8. júní. Flýg þá með Ryanair til Lundúna og verð þar fram á 16. júní.Markmiðið var að fara til Sarajevó en það virðist vera sífellt minni líkur á að ég nái að plata einhvern með mér þangað. Í ljósi þess að það spáir rigningu nær allan tímann sem við verðum á svæðinu þá kannski tekst mér að draga einhvern með - ef guð lofar.
Ég ætlaði líka til Parísar frá London helgina eftir 17. júní en það verður heldur ekkert úr því, því miður.
Á móti kemur að ég flækist líklegast til Flórens, fer pottþétt til Feneyja aftur sem er mjög jákvætt og mun að öllum líkindum sjá eitthvað af Istríuskaganum og kíkja e.t.v. yfir landamærin til Slóveníu. Dúbróvnik ætla ég að hamra í gegn að verði skoðað.
12. júní er útskrift hjá mér en ég er búinn að boða forföll. Ætla þess í stað að borða thailenskan skötusel í grænu karrýi á Mango Tree í London.
Ég mun svara sms-um og skoða póstinn minn við og við á meðan ég verð úti.
Allar ráðleggingar verðandi ferðalög á Balkanskaga eða í London eru þegnar í gegnum kommentakerfið. Sérstaklega ábendingar um ómissandi restauranta í London.
maí 21, 2004
Ritgerð skilað
Skilaði ritgerðinni áðan, innbundinni og fínni.Allt átti að vera tilbúið en þegar maður hef nægan tíma er viðbúið að fullkomnunaráráttan geri vart um sig og maður endi á að nýta tímann fram á síðustu stundu. Það var ágætt. Ég gerði nokkrar smáatriðabreytingar, fann þrjár villur í skráningu heimilda, þannig núna ætti hún að vera skotheld hjá mér, bætti aðeins útlitið og komst að lokum að því þegar ég var kominn í jakka og skó og á leiðinni út að ég var með forsíðuna vitlausa. Hafði skrifað ritgerðarnúmerið 178 en átti að vera 179. Skilaði tímanlega, næstum klukkutíma fyrir lokun.
Tilfinningin er góð. Ferðalagi, sem hófst síðsumars í fyrra, lokið. Og lengra ferðalagi í gegnum 3 ára BS-nám.
Brátt fæ ég að kalla mig viðskiptafræðing. Það hefði mér þótt nóg fyrir nokkrum árum en ekki í dag. "Mikill vill meira".
Þar sem ég hafði engan credit-lista í ritgerðinni, sem sumir settu í formála, er kannski ekki úr vegi að þakka yfirlesurunum þremur sem hjálpuðu mikið með sínum athugasemdum. Fyrst og fremst Siggu fyrir að laga enskuna í ritgerðinni og vekja Castro aftur til lífsins sem ég drap fyrir setningarfræðilegan misskilning 1966 með aðstoð CIA. Einari og Ólöfu þakka ég efnislega yfirferð og uppbyggjandi umsagnir.
Hér kemur svo útdrátturinn úr ritgerðinni, sem fékk að lokum heitið Economic Sanctions: An Impotent Policy?
Lesa áfram
maí 20, 2004
Ríkisstyrkir til landbúnaðar
Það getur verið gott að setja tölur í samhengi.Evrópusambandið eyðir 51 milljarði dala (43 milljörðum evra). (src)
Heildarframlag þjóða heimsins til þróunarsamvinnu var 58 milljarðar dala 2003 skv. tölum Alþjóðabankans, 52 milljarðar 2002.
Ríkisstyrkir til landbúnaðar í Bandaríkjunum voru 21,5 til 23,5 milljarðar dala á ári árin 1998 til 2001. Árið 2002 námu styrkirnir aðeins 12.150 milljónir dala. Meðalgreiðsla á tímabilinu 1998-2001 var 12 þús. dalir per bónda (src). Það er svipað og VLF Slóvaka.
36 milljónir íbúa Tanzaníu lifðu á samtals 20,4 milljörðum dala.
Bandarískir búmullarbændur fá rúma 2 milljarða í styrki á ári (src). Það er rúmlega tvöfalt hærri upphæð en 1360 þúsund íbúar Guineu-Bissau lifa á eða litlu lægri upphæð en 3 milljónir íbúa Kongó-Brazzaville lifa á.
Bómullarbændur í Bandaríkjunum eru um 25 þús. Þeir fá rúma 80 þús. dali að meðaltali. Það er ekki óalgengar árstekjur 100 manna í Afríku (sem væru þá yfir fátæktarmörkum skv. skilgreiningunni).
Agust skrifaði kl. 13:04
Flokkun: Afríka , Ameríka , Development , Evrópusamvinnan , Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation
Flokkun: Afríka , Ameríka , Development , Evrópusamvinnan , Hagfræði , Hnattvæðing/Globalisation
Kosningarnar á Indlandi
But the key to spreading the benefits of globalization across a big society is not about more Internet. It is about getting your fundamentals right: good governance, good education. India's problem is not too much globalization, but too little good governance. Local government in India — basic democracy — is so unresponsive and so corrupted it can't deliver services and education to rural Indians. As an Indian political journalist, Krishna Prasad, told me: "The average Indian voter is not saying, `No more reforms,' as the left wants to believe, but, `More reforms, please' — genuine reforms, reforms that do not just impact the cities and towns, but ones which percolate down to the grass roots as well."- Making India Shine (Thomas Friedman)
Nýlega las ég stutta en áhugaverða grein í Economist, sem var skrifuð fyrir kosningarnar, um Kommúnistaflokk Indlands í Kolkata (Calcutta), sem hefur bannað verkföll og gerir nú allt til að laða að erlenda IT-fjárfestingu til Vestur-Bengalsvæðisins.
The Economist er þó bara hæfilega bjartsýnt í garð nýju stjórnarinnar.
maí 16, 2004
Slavóvisjón?
Týpískt, ég læt af andúð minni á Júróvisjón, mæti í Júróvisjón grillpartý, kominn í stemmningu og hvað gerist? Jónsi syngur falskt (fór út af sporinu a.m.k. 6 sinnum) og Söngleikur Hrafns Gunnlaugssonar vinnur. Í öðru sæti lenti svo Serbi sem enginn í okkar grillpartýi mundi hvernig hljómaði.Rúmenska lagið fékk stig, sem út af fyrir sig er skandall. Kynþokkalausasta smekkleysa sem sést hefur austan Alpafjalla.
Júróvisjón frá Tallin til Istanbúl til Kænugarðs (nema Úkraínumenn geri líkt og Tyrkir og haldi keppnina utan höfuðborgarinnar). Skemmtilegt. Lítt þekkt lönd í austri fá tækifæri til að sýna túristakynningar á milli laga. Verst að áhorfið mun hugsanlega minnka, núna þegar "siðmenntuðu" Vestur-Evrópuþjóðirnar vinna ekki.
Slavóvisjón?
Gáfu Austur-Evrópuþjóðirnar allar hverri annarri atkvæði? Ef við lítum t.d. á íslensku atkvæðin, sem voru skv. fréttum átt í 40 þús, sést að Spánn fékk 1 stig, UK 2 stig og Svíþjóð 8 stig. Önnur atkvæði Íslendinga voru til austrænna þjóða (þ.m.t. Grikkir sem fengu 6 stig). Ronja ræningjadóttir Gunnlaugssonar fékk 12 stigin.
Norðmenn, sem lentu í neðsta sæti gáfu Íslendingum 5 stig, sænskum nágrönnum sínum 12 stig og Þjóðverjum 1 stig. Önnur atkvæði fóru austur á bóginn.
(Úrslitin er aðgengileg á Eurovision.tv)
E.t.v. væri nær að tala um austursamsæri frekar en slavneskt. Slavneskt/tyrneskt/grískt samsæri, það var þá!
Tónlistarsmekkur Evrópumanna er líklegast bara svona lélegur, eða fólks yfirhöfuð. Það er a.m.k. mun líklegra en að Austur-Evrópumenn hafi ákveðið að standa saman í söngvakeppni hvítu jakkafatanna.
Sumar samsæriskenningarnar stóðust, aðrar ekki. Tyrkir fengu sín 12 stig frá Þjóðverjum, Grikkir gáfu Kýpverjum 12 stig og Kýpverjar svöruðu í sömu mynd. Svíar fengu 12 stig frá Finnum, Dönum og Norðmönnum. Svona gengur þetta.
Athyglisvert er að sjá hvaða Evrópulönd keppa ekki í Júróvisjón.
Tékkland, Slóvakía og Ungverjaland taka ekki þátt, smáríkin Lúxemborg (kepptu þeir ekki áður fyrr?), Lichtenstein, San Marínó og Páfagarður (yrði athyglisvert) eru ekki með en Andorra og Mónakó tóku þátt í ár. Moldóva, fátækasta land álfunnar, og þótt víðar væri leitað, tekur ekki þátt, skiljanlega kannski.
Íslendingar ættu ekki að skammast sín fyrir að ganga í lið með þessum ágætu menningarþjóðum og sleppa að taka þátt á næsta ári. Peningana má nota í margt skynsamara, t.d. taka Jón Ólafsson og flygilinn hans aftur á dagskrá. Gísli Marteinn getur lýst prógramminu úr Efstaleitinu.
maí 13, 2004
Öryggisventillinn
Ólafur Ragnar er kominn heim.Mun hann skrifa undir?
Verður fjölmiðlafrumvarpið sent í þjóðaratkvæði?
Spennan magnast.
maí 11, 2004
Abú Graíb
Ef marka má ensk-arabísku/arabísk-ensku orðabókina mína, sem mér áskotnaðist nýlega, er hægt að þýða Abú Graíb* (ابو غريب) sem "The Odd One" eða "The Queer One". Athyglisvert.* Ef mér skjátlast ekki er framburðurinn "Rra'íb", með r-i líkt og í rauðgrautur á dönsku.
Þess má geta að samkvæmt sömu orðabók þýðir as-Sadr (الصدر), í lauslegri þýðingu, sá sem lýsir e-u yfir/sendir e-ð frá sér, sem er athyglisvert í ljósi þess að fáir shítaleiðtogar hafa verið eins yfirlýsingaglaðir en einmitt Múqtada as-Sadr.
maí 10, 2004
ESB og útflutningsstyrkir
Þetta eru líklegast einar jákvæðustu fréttir fyrir þróunarríki sem maður hefur heyrt lengi: EU offers to scrap farm export subsidiesEvrópusambandið hefur ákveðið (loksins!) að fella niður útflutningsstyrki í landbúnaði.
Sjá nánar: EU takes action to help developing countries fight commodity dependency og EU ready to go the extra mile in three key areas of the talks á heimasíðu ESB.
Fögur fyrirheit en auðvitað með vissum fyrirvörum.
Agust skrifaði kl. 21:09
Flokkun: Afríka , Development , Evrópusamvinnan , Fréttir , Hnattvæðing/Globalisation
Flokkun: Afríka , Development , Evrópusamvinnan , Fréttir , Hnattvæðing/Globalisation
Fækkun glæpa
Athyglisverð rannsókn sem Jón Steinsson greinir frá í þessum pistli: Af hverju hefur glæpum fækkað í Bandaríkjunum?Nýjar baráttuaðferðir
The Observer: Oral sex lessons to cut rates of teenage pregnancyÞegar ég heyrði af þessu í hádegisfréttunum í dag datt mér allskonar slagorð í hug, sem yfirvöld í Bretlandi gætu notað til að kvetja unglinga til að stunda frekar munnmök en hefðubundin, óléttuvaldandi kynmök.
- Stop pregnancy, suck on it!
- Don't blow your future, blow him
- Fellatios, not fallacies
- Don't be a dingus, give cunnilingus
- The moral is oral
maí 09, 2004
Besta og um leið einfaldasta túnfisksalat í heimi
Í dag bjó ég til besta og um leið einfaldasta túnfisksalat í heimi (a.m.k. held ég því fram). Túnfisksalatið mitt hefur líka þann mikla kost að vera rammhollt.Uppskriftin hljómar einhvern veginn svona:
Hið danska Flygenring túnfisksalat
1 dós af ORA túnfiski í vatni
- kreista allt vatnið úr dollunni, annars verður salatið slepjulegt
1 lítil dós af Kotasælu
2 msk. af létt majonesi (fyrir bættan "smurleika" á brauð)
gular baunir [sem sumir vilja kalla maís] úr dós (ORA) eftir smekk, meira er betra
kóríander eftir smekk (ferskt ef til er)
Þetta er einfaldasta útgáfan, þegar tækifæri gefst og nenna má bæta við (allt smáttsaxað) lauk (eða rauðlauk), radísum, steinselju, pipar (ef vill) og jafnvel smá hvítlauk.
Hræra í skál og smyrja ofan á gróft brauð - t.d. sólkjarnabrauð. Þarf að smyrja mjög þykkt á brauðið, enda salatið frekar gróft.
Stærstu kostirnir við salatið eru augljóslega að það sama og ekkert majones, engin egg og maður finnur túnfiskbragð af því, ekki bara majoness/eggjabragð einsog svo oft. Mér finnst alveg grundvallaratriði að hafa gular baunir í túnfisksalatinu mínu og kóríanderinn stendur alltaf fyrir sínu (ég vil hafa vænan slatta af honum). Rammhollt, tekur 5 mín. í framleiðslu. Hægt að geyma í ísskáp þangað til daginn eftir (venjulega klárast það fyrir þann tíma).
ps. Af hverju er sallat vitlaust skrifað í íslensku? Sallat er framborið með tveimur ellum. Asnalegt.
maí 08, 2004
Gott veður
Eftir að hafa hamast í BS-ritgerðinni í morgun setti ég hana á salt og fór á hestbak í hádeginu. Veðrið var yndislegt og fór ég í góðan tveggja tíma túr.Þegar ég var búinn að fara heim og borða fór ég með Loga í ræktina. Tókum þar tveggja tíma fótaprógram og skelltum okkur svo í pottana. Þar var Svansson að slæpast.
Góður dagur. Gott veður. Lífið er gott.
Darfur
BBC-vefurinn hefur birt undanfarið nokkrar greinar um stöðu mála í Darfur í Súdan:
Darfur crisis 'tragic', UN says (4/5)
Chad 'clashes' with Sudan militia (6/5)
Darfur's human tragedy (6/5)
Sudan 'starving Darfur refugees' (7/5)
Ég hef ekki náð að fylgjast nógu vel með því, en svo virðist sem að þrýstingur á Khartoum stjórnina sé að aukast vegna málsins.
maí 06, 2004
maí 05, 2004
The Lady's not for turning
Spectator er blað sem ég gleymi alltaf að lesa. Svona u.þ.b. rekst ég inn á síðu blaðsins og finn þá iðulega nokkrar greinar við mitt hæfi. Gleymi svo að lesa það mánuðum saman og þegar ég rekst á einhvern link á blaðið rifjast alltaf upp fyrir mér að ég þurfi að lesa það oftar.Í gær voru 25 ár síðan Margrét Thatcher vann fyrst sigur á Verkamannaflokknum í Bretlandi. Fyrr í vikunni voru reyndar 7 ár síðan að Tony Blair vann sögulegar kosningar.
Spectator birti grein um frúnna, sem er vel lestursins virði. Það er í tísku að atast út í hina 79 ára gömlu barónessu en Spectator fer a.m.k. kurteisum orðum um hana: Thatcher bounces back
Læknar hafa bannað þeirri gömlu að flytja opinberlega ræður en frúin sem stærði sig af því að þurfa aðeins 5 tíma svefn hefur átt erfitt með að sætta sig við slíkar hömlur. Hún ætlar að flytja skrifstofur sínar í þingið og taka aukinn þátt í Lávarðadeildinni. Hún hefur verið að jafna sig af minniháttar heilablóðfalli og fluttu ræðu í veislu sér til heiðurs í tilefni að 25 ára júbbíleiunu.
maí 04, 2004
Qaddafi um Bush
Þessi ummæli sem látin voru falla snemma árs 2001 er nokkuð kaldhæðin í ljósi atburðarásarinnar síðan þá.Abuzed Dorda, Libya's U.N. envoy, has said, "I expect that we will sit down with the Americans and put the past behind us." Even Qaddafi, in his own eccentric manner, has made overtures to the new American president, stressing, "I believe that George W. Bush will be nice. As a person he is not malicious or imperialist. I believe that he attaches importance to the United States and does not have world ambitions."(Ray Takeyh: The Rogue Who Came in From the Cold. Foreign Affairs, 97)
maí 02, 2004
Hvað skal gera?
So, what do we do about this war? (hét Trustin Iraqis? í NYT)Það koma svo margir góðir punktar fram í þessari grein Nicholasar Kristof, að ég ætla ekki einu sinni að byrja að vitna í hana. Ég þyrfti að endurbirta hana alla.
