júní 25, 2004
Nýja reiknivélin mín
Ég var að fá nýja reiknivél í vinnunni. Eða öllu heldur að fá reiknivél.Það væri ekki til frásögu færandi nema fyrir það að ekki aðeins er hún búin misgagnlegum fídusum á borð til sjálfvirkum vsk- og marginuútreikningum heldur sýnir hún manni hvað klukkan er eða dagsetninguna eftir því hvort maður vill þegar maður er ekki að nota hana. Að auki þurfti ég að byrja að velja tungumálið sem ég vildi vinna á, ensku, frönsku, þýsku, spænsku eða ítölsku?
Í einfeldni minni hélt ég að samlagningin væri eins hvort sem menn tala ensku eða ítölsku.
Annaðhvort er þetta fullkomnasta reiknivél sem ég hef kynnst eða að þetta er hreinlega vegna þess að þetta er í fyrsta skipti sem ég les manualinn áður en ég byrja að nota vélina.
Agust skrifaði 25.06.04 16:07
Flokkun: Daglegt líf
Comments
Hvaða vinnu ertu kominn í?????
anna rósa skrifaði 28.06.04 13:20