júlí 09, 2004
Bíllinn sem segir nafnið sitt
Í fyrradag sá ég "bílinn sem segir nafnið sitt", Trabant, á Hafnarfjarðarveginum. Lenti á eftir honum þegar hann var að taka fram úr rútu undir Arnarnesbrúnni. Kemst þó hægt fari er ekki gæfuríkt lögmál í framúrakstri en þegar halla tók undan fæti, niður í Kópavoginn, bætti Trabbinn við sig. Mér til mikillar furðu náði hann 95 km/klst. (niður í móti).Eitt sinn sá ég Trabant keppa í rallý-akstri, fyrir svona 7-8 árum síðan. Hann náði líka merkilega miklum hraða - niður í móti.
Ég er samt ekki frá því að ég hafi orðið vitni að nýju Íslandsmeti í hraðakstri á Trabant þarna í fyrradag. Ekki það að mig grunar hvernig bílstjórinn náði þessum hraða. Hann hefur stigið á kúplinguna.
Trabantinn er einn af þessum bílum sem maður saknar af götum bæjarins. Fjölbreytileiki íslenska bílaflotans fer síversnandi. Fram undir fall kommúnismans voru tegundirnar fleiri. Samhliða brottfalli austantjaldsbílanna hurfu amerískir bensínhákar líka af götunum, sem er skemmtileg tilviljun. Eftir lifa nær eingöngu japönsk og þýsk merki. (Reyndar fagna ég því að franskir eru að sækja í sig veðrið síðustu misseri).
Agust skrifaði 09.07.04 11:42
Flokkun: Daglegt líf
Það er rétt að taka fram, Ágúst, að ég tel mig eiga hraðamet á Trabant. (Ég átti tvo á sínum tíma.) Eitt sinn var ég á ferð í þeim síðari með alla fjölskylduna og tengdó í framsætinu að komainn Kollafjörðinn og sýndi mælirinn 120 km hraða. Að þessu eru mörg vitni. Almennt var auðvelt að koma Trabbanum yfir hundraðið ef tíminn var nægur til þess.
Gísli skrifaði 09.07.04 12:43Að hætti Björns Bjarnasonar þakka ég þér fyrir að taka þátt í þessari "tilraun" minni, Gísli. Hún gekk út á að sjá hve lengi færslan gæti verið á internetinu þangað til að frægasti Trabant-eigandi Hafnarfjarðar væri búinn að kommenta á hana :)
Ágúst skrifaði 09.07.04 16:08Ég hlæ. Björn hlær varla, enda sneyddur skopskyni :)
Gísli skrifaði 09.07.04 19:15Trabbarnir hans Gísla voru náttúrulega frægir - að ég ekki segi alræmdir. :-)
Ég prófaði einu sinni að keyra Trabant til Keflavíkur. Þá fyrst áttaði ég mig á því að leiðin liggur upp í móti mestallan tímann.