júlí 15, 2004
"You don't have to be a pompous old fart to be an ambassador."
Athyglisvert viðtal við Craig Murray, sendiherra Breta í Tashkent. Hann hefur farið að sumum finnst út fyrir starfssvið sitt með því að láta mannréttindi, eða öllu heldur brot á þeim, í landinu sig varða.Hinn 43 ára gamli Murray hafði átt óvenju skjótan frama í utanríkisráðuneyti Breta. Starfaði við góðan orðstýr í Afríku og átti í þrígang að heiðra hann af drottningunni en finnst "letters after his name "not his thing"".
Nú er hann hinsvegar, ef svo má segja, einn og yfirgefinn. Búinn að vera. Framinn farinn í vaskinn, konan farin og heilsan að gefa sig.
The FCO insists Murray represents its point of view, yet is remarkably nervous about this interview, contacting Murray and myself several times on the day before we meet. Its concern is understandable: Murray is not discreet. As he himself admits: "There is no point in having cocktail-party relationships with a fascist regime." He says he advocates a new style of ambassadorship, one that is more down to earth and less stuffy. "You don't have to be a pompous old fart to be an ambassador."Segir ódiplómatíski diplómatinn, sem hefur þó náð að vekja umtalsverða athygli á mannréttindabrotum öryggissveita Islams Karimov forseta, sem praktísera m.a. nauðganir með brotnum glerflöskum og sjóða af fólki útlimi með heitu vatni, nú eða heilsjóða ættingja ódællra borgara og senda heim.
Agust skrifaði 15.07.04 12:41
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál