júlí 19, 2004

Nauðsynlegt að skjóta þá?

Í Independent segir frétt (Harpooned: the world's fight to save the whale) frá því hve ógnvekjandi staðan getur orðið innan Alþjóða hvalveiðiráðsins ef Japanir og hinir hvalamorðingjarnir ná tökum á ráðinu.
They could, for example, exclude environmental pressure groups and the media from the meeting, elect a new chairman, pass pro-whaling resolutions and annul anti-whaling ones, and generally make the IWC a body to promote commercial whaling rather than to regulate it.
Oh, horrors!
Frétt sem ætti að vekja athygli Íslendinga.

Þess má geta að það ku vera útilokað að fá ferskt hvalkjöt á Íslandi. Grillveisla sem staðið hefur fyrir dyrum undanfarnar vikur hefur frestast - þangað til að hvalkjöt finnst í landinu. Frostið, norskt kjöt síðan guð-má-vita-hvenær heillar ekki.
Agust skrifaði 19.07.04 15:32

Flokkun: Stjórnmál
Comments

Sæll Ágúst
Er nokkur markaður nokkurs staðar fyrir hvalkjöt nema fyrir ísl. og norska sérvitringa ;) plús miðaldra japani??

Ég var náttúrulega "munstruð" í verkefni um hvalveiðar Íslendinga í alþj. umhv.rétti hjá dr. Ellen Hey í Erasmus síðasta vetur og fann þá athyglisverða grein í Biodiversity and Conservation 13 (2004) eftir Victoria Schneider and David Pearce, "What saved the whales? An economic analysis of 20th century whaling" - þar sem höfundar leiða vísindalegar líkur að því að markaðsöflin hafi stuðlað að verndum hvala löngu áður en regluverk og alþjóðasamþykktir gerðu það. -- Fólk vill almennt ekki lengur hvalkjöt. Japanir t.d. fúlsa við því norska og segja það innihalda of mikið að kvikasilfri. Svo fannst mér líka skondið hvað enginn gat gefið mér upplýsingar um markaðsrannsóknir fyrir hvalaafurðir þegar ég var að vinna verkefnið og heldur ekki hvernig gekk að selja það sem var veitt í fyrra.

Annars hef ég svo sem ekki gert upp við mig hvort við eigum að veiða hvali eða ekki. Sem stelpa í sveit norður í Eyjafirði borðaði ég mjög oft Hrefnukjöt og fannst lostæti. Mér finnst bara að allt eigi að eiga sér tilgang og leiðist þegar "Bjartur í Sumarhúsum" fílingurinn blindar Íslendinga.

Bestu kveðjur frá landinu bjarta
siggaloga

siggaloga skrifaði 21.07.04 23:10