júlí 20, 2004
Turk 182
Hvers á maður að gjalda þegar klipparinn manns fer í frí. Ég er nú þegar búinn að draga heimsókn til hans í rúma viku og þegar ég ætla að panta tíma fæ ég þau svör að hann sé í sumarfríi þessa vikuna!Svona lagað á að sjálfsögðu að tilkynna manni með margra vikna fyrirvara, maður þarf nú að skipuleggja sig út frá svona hlutum.
Ég fæ ekki tíma fyrr en á mánudag og verð því einsog illahirtur skiptinemi þegar að því kemur :)
Agust skrifaði 20.07.04 11:21
Flokkun: Daglegt líf
Þú ferð nú á sömu stofu og ég, hvernig væri að prófa klipparann minn. Stórvin minn hann Ingó :þ
Svan skrifaði 20.07.04 15:54Svan, ertu bjálaður? Láta annan klippa mig? Maður skiptir ekki um klippara nema hann flytji úr landi eða gefi upp öndina. Svo einfalt er það ;)
Ágúst skrifaði 21.07.04 14:09Þú ert nú ekki með flóknustu þarfir í heiminum hvað hárgreiðslu varðar. Ég held að ég gæti meira að segja klippt þig :þ
Svan skrifaði 21.07.04 15:43Stundum verður maður að grípa til örþrifaráða, ekki viltu líta út eins og illa hirtur skiptinemi, er það nokkuð?
Svan skrifaði 21.07.04 15:45Svan, trúðu mér, hárið á mér er ekki eins "auðvelt" og það lítur út fyrir að vera. Ef það er klippt vitlaust verður það röndótt og við sveipina verður ekki ráðið nema á þá sé ráðist með réttum hætti.
Ég hef prufað nokkra aðra klippara, einmitt í tilfellum sem þessum, þegar klipparinn er ekki til taks. Ég lærði það "the hard way" að ég treysti bara einum manni fyrir hárinu á mér. Þeim sem hefur að mestu klippt mig síðustu 16 árin. Ég held raunar að það séu 5-6 ár síðan að ég brenndi mig síðast á því að láta annan klippa mig, svona ef út í það er farið.
Ágúst skrifaði 21.07.04 15:52Já, en hvar er Pétur?
Hjalti skrifaði 28.07.04 12:47