júlí 26, 2004
Tabloid-stærðin
Stundum er sagt að blaðamenn séu sjálfhverf stétt. Sé eitthvað mál í umræðunni sem snertir stéttina er það blásið upp í fjölmiðlum og fær meiri umfjöllun en eðli málsins segir til um. Það segir kenningin að minnsta kosti.Í Bretlandi hafa sumir áttað sig á því að "broadsheet" stærðin, þessi sem okkur Íslendingum sem aldir eru upp við Moggann finnst óskiljanlegt hvernig hægt er að lesa með því að brjóta blaðið sundur og saman eftir kústarinnar reglum, er óþægileg að lesa nema að lesandinn sé velþjálfaður í að, einmitt, brjóta blaðið sundum og saman eftir kústarinnar reglum.
Þegar ég stoppaði stutt í London fyrr í sumar komst ég einmitt mér til mikillar gleði að tvo af eftirlætisblöðunum mínum eru komin í "tabloid" stærðina, sem er ögn minni en því sem við Mogga-lesendur eru vanir.
Independent skipti alfarið yfir í haust. The Times hefur tekið þann pól í hæðina að gefa bæði út broadsheet og tabloid stærð, áskrifendurnir fá broadsheet stærðina heim en lestarfarþegar geta keypt tabloid stærðina á lestarstöðvum og blaðsölustöndum, a.m.k. í London og öðrum stórborgum.
Ég veit ekki hvort það var því um að kenna að ég hef aldrei lært dagblaðabrot eða vegna þess að ég keypti mér yfirleitt blöðin á morganna til að lesa í lestinni - og að lesa breiðsíðublöðin í lest er ofar mínum skilningi - en ég keypti venjulega Independent eða Times eftir því hvort hafði meira spennandi forsíðu þann daginn (sem var í tvö af hverjum þremur skiptum Independent).
Þegar ég kom síðan heim á kvöldin átti ég það til að kaupa Guardian, Daily Telegraph og á sunnudeginum keypti ég Sunday Times (sem er ekki hægt að bera með sér nema stutta vegalengd, enda tók það allt kvöldið að komast í gegnum það).
Bretar eru íhaldsamir að vanda og er sagt að eldri kynslóðin eigi erfitt með að kyngja þessari breytingu, lesendur treysti einfaldlega ekki fréttum eins vel sem þeir lesa af slúðurblaðastærðinni og breiðsíðustærðinni. Guardian fjallar um árangur Independent með þessari breytingu sinni í grein í dag en þá viku sem ég eyddi hálfum deginum í blaðalestur sá ég a.m.k. tvær greinar um sama efni. Guardian hyggst einmitt breyta stærð sinni í "evrópsku" stærðina, sem er sama stærð og dagblöð á meginlandi Evrópu eru prentuð í.
'It's the most effective promotion in the history of newspapers'
Agust skrifaði 26.07.04 16:01
Flokkun: Menning , Viðskipti