júlí 30, 2004

Fréttablaðið

Svo virðist sem að Fréttablaðið hafi svo rétt eftir heimildarmönnum sínum að það birtir málfræðivillurnar þeirra orðrétt.
Að öðru leyti kann ég copy/paste-urum blaðsins litlar þakkir.
Agust skrifaði kl. 16:01 | Comments (3)
Flokkun: Internetið

júlí 29, 2004

19,6787148594378

Spurt er: Hvaða tala er þetta?
Agust skrifaði kl. 15:55 | Comments (3)
Flokkun: Óflokkanlegt

Loksins...

Alka-Seltzer kom á markað í gær. Rataði inn á fréttamiðla, a.m.k. Tíufréttir RÚV (sá hvorugan aðalfréttatímann) og hafa þessar fréttir ekki aðeins vakið athygli heldur kæti hjá sumum.

Ég vann, ásamt þremur stöllum mínum, að upphaflegu úttektinni sem lagði mat á markaðinn og gerði tillögur að komu Alka Seltzers á markað hér á landi. Fyrir mig er þetta því gleðiefni.
Síðan eru liðnir margir mánuðir og lyfið búið að fara í gegnum allan þann prósess sem slík vara þarf til að koma á markað. Meðan hef ég auðvitað þurft að þaga yfir mjög "spennandi" leyndarmáli. Nú er Alka Seltzerinn kominn á markað og vinir mínir geta fengið skýringuna á því hvers vegna ég hafði allt í einu svona sterkar skoðanir á því hvað þeir nota gegn höfuð- og beinverkjum - og af hverju ég hélt nokkrum sinnum ræðuna um eðlismun asetýlsalicýlsýru (yndislegt orð!), parasetamóls og íbúprófens.

Alka Seltzerinn er reyndar, þvert á það sem margir halda, ekki sérhannaður þynnkubani. Þetta er alhliða verkjalyf sem sökum uppleysanleika síns auðveldar upptöku virkra efna í líkamanum. M.ö.o. ætti það að virka hraðar en verkjalyf í töfluformi. Lyfið hefur svo þann kost fram yfir flest önnur verkjalyf í lausasölu, sem sum hver geta valdið magaólgu, að Alka Seltzerinn ballanserar magann um leið. Það er því óþarfi að spara hann bara fyrir daginn-eftir-einkennin, því hann virkar jafn vel á aðra hefðbundna verki og önnur venjuleg asprín- og parasetamóllyf.

Þess má geta að myndin sem fylgir fréttinni á Vísir.is er af röngum Alka Seltzer, Extra Strong, týpunni sem verður mér vitandi ekki í sölu hér. Alka Seltzer brandið er með nokkrar týpur, m.a. gegn kvefi og brjóstsviða.

Til að taka af allan vafa hef ég engin tengsl (lengur) við umboðsaðila lyfsins og skrifa á eigin ábyrgð.
Agust skrifaði kl. 8:31
Flokkun: Daglegt líf , Viðskipti

júlí 27, 2004

Leiðinlegi frambjóðandinn

I didn't realize that tediousness is John Kerry's greatest trait. I didn't realize that a country barraged by a decade of Gingrich, impeachment, hanging chads and war may actually be looking for a Brezhnev to give it a break.
- David Brooks, Kerry at the Wheel, NYT.
Agust skrifaði kl. 14:18 | Comments (1)
Flokkun: Ameríka , Stjórnmál

júlí 26, 2004

Tabloid-stærðin

Stundum er sagt að blaðamenn séu sjálfhverf stétt. Sé eitthvað mál í umræðunni sem snertir stéttina er það blásið upp í fjölmiðlum og fær meiri umfjöllun en eðli málsins segir til um. Það segir kenningin að minnsta kosti.
Í Bretlandi hafa sumir áttað sig á því að "broadsheet" stærðin, þessi sem okkur Íslendingum sem aldir eru upp við Moggann finnst óskiljanlegt hvernig hægt er að lesa með því að brjóta blaðið sundur og saman eftir kústarinnar reglum, er óþægileg að lesa nema að lesandinn sé velþjálfaður í að, einmitt, brjóta blaðið sundum og saman eftir kústarinnar reglum.
Þegar ég stoppaði stutt í London fyrr í sumar komst ég einmitt mér til mikillar gleði að tvo af eftirlætisblöðunum mínum eru komin í "tabloid" stærðina, sem er ögn minni en því sem við Mogga-lesendur eru vanir.
Independent skipti alfarið yfir í haust. The Times hefur tekið þann pól í hæðina að gefa bæði út broadsheet og tabloid stærð, áskrifendurnir fá broadsheet stærðina heim en lestarfarþegar geta keypt tabloid stærðina á lestarstöðvum og blaðsölustöndum, a.m.k. í London og öðrum stórborgum.
Ég veit ekki hvort það var því um að kenna að ég hef aldrei lært dagblaðabrot eða vegna þess að ég keypti mér yfirleitt blöðin á morganna til að lesa í lestinni - og að lesa breiðsíðublöðin í lest er ofar mínum skilningi - en ég keypti venjulega Independent eða Times eftir því hvort hafði meira spennandi forsíðu þann daginn (sem var í tvö af hverjum þremur skiptum Independent).
Þegar ég kom síðan heim á kvöldin átti ég það til að kaupa Guardian, Daily Telegraph og á sunnudeginum keypti ég Sunday Times (sem er ekki hægt að bera með sér nema stutta vegalengd, enda tók það allt kvöldið að komast í gegnum það).
Bretar eru íhaldsamir að vanda og er sagt að eldri kynslóðin eigi erfitt með að kyngja þessari breytingu, lesendur treysti einfaldlega ekki fréttum eins vel sem þeir lesa af slúðurblaðastærðinni og breiðsíðustærðinni. Guardian fjallar um árangur Independent með þessari breytingu sinni í grein í dag en þá viku sem ég eyddi hálfum deginum í blaðalestur sá ég a.m.k. tvær greinar um sama efni. Guardian hyggst einmitt breyta stærð sinni í "evrópsku" stærðina, sem er sama stærð og dagblöð á meginlandi Evrópu eru prentuð í.
'It's the most effective promotion in the history of newspapers'
Agust skrifaði kl. 16:01
Flokkun: Menning , Viðskipti

Feik

Guardian segir frá því að hulunni hefur verið svipt af bandarískum rithöfundi sem þóst hefur verið Jórdani og skrifaði metsölubók um "heiðursmorð" í Jórdaníu. Forbidden Love hefur selst í 250 þús. eintökum síðan hún kom út 2002. Norma Khouri sagðist byggja hana á sögu vinkonu sinnar í Jórdaníu sem kynntist kristnum hermanni. Örlög hennar voru þar með ráðin. En nú hefur komið í ljós að Khouri er frá Chicago og skýrir það líklegast staðreyndavillurnar í bókinni og ameríska hreiminn í enskunni hennar. Sjá:
Bestseller on honour killing 'is a fake'
Agust skrifaði kl. 15:41
Flokkun: Menning

júlí 23, 2004

Lífið er gott

Eftir vinnu í gær og langt fram á kvöld var ég að vesenast í hestum.

Í gærkvöldi fór ég á frábæra tónleika.

Í hádeginu í dag er plokkfiskur í matinn.

Þarf að segja meira?
Agust skrifaði kl. 7:55
Flokkun: Daglegt líf

júlí 21, 2004

Morðmál Srijar

Í fréttum af morðmálinu í Stórholtinu, hvers vegna er nafnið Sri aldrei beygt í eignarfalli "Srijar"? Sri (Srý) er ekki ólíkt Sirrý. Sirrý-Sirrýjar, Sri-Srijar.
Ég get ekki betur séð en að þetta falli ágætlega að íslenskri tungu. Þeir sem trúa á þá hugmyndafræði að innflytjendur eigi að taka sér íslenskt nafn vildu sjálfsagt heyra talað um "Guðrúnar-málið" eða eitthvað álíka.
Agust skrifaði kl. 16:00 | Comments (8)
Flokkun: Fréttir

júlí 20, 2004

Turk 182

Hvers á maður að gjalda þegar klipparinn manns fer í frí. Ég er nú þegar búinn að draga heimsókn til hans í rúma viku og þegar ég ætla að panta tíma fæ ég þau svör að hann sé í sumarfríi þessa vikuna!
Svona lagað á að sjálfsögðu að tilkynna manni með margra vikna fyrirvara, maður þarf nú að skipuleggja sig út frá svona hlutum.
Ég fæ ekki tíma fyrr en á mánudag og verð því einsog illahirtur skiptinemi þegar að því kemur :)
Agust skrifaði kl. 11:21 | Comments (6)
Flokkun: Daglegt líf

júlí 19, 2004

Jónsi, Gunni og Bjarni

Í kvöld fengum við Þórir okkur ís. Ítalskan ís hjá Herberti eighties-stjörnu í Stikkfrí í Síðumúlanum. Hvíti ísinn hjá honum er bærilegum en ekkert betri en hver annar. Ítalski ísinn er hinsvegar, komst ég að í kvöld, mjög góður.
Ég hef aldrei verið sérstaklega mikið fyrir ítalskan kúluís. Verandi Íslendingur hef ég fordóma gagnvart þesslags ísgerð þar sem á Íslandi er (íslenskt framleiddur) ítalskur ís bæði dýr og frekar óspennandi á bragðið.
Herbert ku hafa farið til móðurlandsins til að nema ísgerð og stendur ítalski ísinn hans undir nafni.
Hann átti eftir að laga tiramisu-ísinn og vona ég að hann verði til næst. Í Króatíu tók ég ástfóstri við ítalskan tiramisu-kúluís. Hann er reyndar nokkuð vandmeðfarinn virðist vera en sé hann rétt gerður, mmmm.

Þegar við vorum búnir að sleikja ísinn og skoða rándýra austurlenska vasa í Gallerí Tútú (er það bara ég eða er fólkið á "íranska" 2 milljóna króna vasanum alræmda hindískt eða er það bara ímyndum mín?) lögðum við af stað upp í Grafarvog.

Í Fellsmúlanum (da. Fedtsmule) sá ég mann á gangi með kunnuglega uppsperrt hárið. Sá þegar nær dró að ekki fór á milli máli að þetta var Bjarni. Ég flautaði og vinkaði.

Þórir tók eitthvað undarlegt skyndi taugakast og ef plássið hefði verið til þess í framsætinu hefði hann grúft sig niður, að því virtist vera. Ég skyldi ekki hvað gekk að honum en þar sem þetta var Þórir veit maður svo sem aldrei.

Eftir að við höfðum spjallað aðeins við Bjarna og Urði, sem var með honum, og við vorum komnir aftur af stað fékk ég skýringu á undarlegheitunum í Þóri:

Þórir hélt fyrst að ég hefði séð Jónsa (í Svörtum fötum) þarna á gangi og ég hefði flautað á hann. Þegar Jónsi nálgaðist og ég hægði á bílnum var Þórir viss um að þetta væri Gunnar "Gunni & Felix" Helgason og hélt að ég ætlaði að fara að tala við hann. Hann ákvað því að taka nett undarlegheitakast og í því augnamiði losaði hann m.a. af sér öryggisbeltið (svona um leið og hann reyndi að fela sig - árangurslaust, enda stór maður með eindæmum).

Til að sýna hvernig Þóri tókst að rugla Jónsa í Svörtum fötum, Gunnari Helgasyni og Bjarna ruslpóstsfræðingi saman eru hérna myndir af þeim þremur:
Jónsi í svörtu leðurvesti
Gunni (úr Gunni & Felix taka til ©RÚV)
Opinber internetmynd Bjarna
Að lokum má þess geta að ég þekki hvorki Jónsa né Gunnar Helgason og Þórir og Bjarni voru að hittast í fyrsta skipti (án þess þá að Bjarni vissi hvern hann var að hitta held ég).

Og einsog ég benti Þóri á, þá er hann ruglaður, mennirnir eru ekki vitund líkir!
Agust skrifaði kl. 23:53 | Comments (4)
Flokkun: Daglegt líf

Nauðsynlegt að skjóta þá?

Í Independent segir frétt (Harpooned: the world's fight to save the whale) frá því hve ógnvekjandi staðan getur orðið innan Alþjóða hvalveiðiráðsins ef Japanir og hinir hvalamorðingjarnir ná tökum á ráðinu.
They could, for example, exclude environmental pressure groups and the media from the meeting, elect a new chairman, pass pro-whaling resolutions and annul anti-whaling ones, and generally make the IWC a body to promote commercial whaling rather than to regulate it.
Oh, horrors!
Frétt sem ætti að vekja athygli Íslendinga.

Þess má geta að það ku vera útilokað að fá ferskt hvalkjöt á Íslandi. Grillveisla sem staðið hefur fyrir dyrum undanfarnar vikur hefur frestast - þangað til að hvalkjöt finnst í landinu. Frostið, norskt kjöt síðan guð-má-vita-hvenær heillar ekki.
Agust skrifaði kl. 15:32 | Comments (1)
Flokkun: Stjórnmál

júlí 18, 2004

Tabúið að hætta ekki við

Television's Most Persistent Taboo (NYT):
Unlike such once-taboo issues as date rape, gay relationships and teenage sex, abortion on television remains an aberration.
Kanadísk sjónvarpsstöð sýndi í vetur þátt í unglingaþáttaröð þar sem ein aðalpersónan, 14 ára gömul, fór í fóstureyðingu - án þess að sjá eftir því. Það þykir tíðindum sæta í Norður-Ameríku.
On TV, most women and girls who contemplate an abortion make up their minds, often at the last minute, that they're keeping their babies ("Beverly Hills, 90210," "Dawson's Creek," "The O.C."), even if they happen to get as far as a clinic or doctor's office ("Felicity," "Sex and the City"). It was this trend that inspired Greg Berlanti, the creator of "Everwood," to depict someone who goes through with an abortion — it was one of the stories he pitched to WB before it bought the show. The episode, broadcast in May 2003, made "Everwood" one of the few shows on network television to portray a character's decision to have an abortion since "Maude" in 1972 (abortion was legal in New York state, where "Maude" took place, before Roe v. Wade was decided in January 1973).
Ekki má heldur gleyma eftirminnilegu atriði í Six Feet Under þar sem Nate hittir fyrir öll börnin sem hann hefur feðrað en látið eyða. Eitt þeirra segir við hann "Hi. You killed me ... I don't harbor any bad feelings or anything. I'm pro-choice. Well, at least I would be, if I were alive."
Agust skrifaði kl. 22:50
Flokkun: Fóstureyðingar

Mrs. Heinz

Skemmtileg lýsing á eiginkonu Kerry forsetaframbjóðanda. Sem kunnugt er var hún gift erfingja Heinz-tómatsósuveldisins, sem lést fyrir einum tuttugu árum, áður en hún tók saman við Kerry.
Even in a place where everyone is constantly reinventing, people are a little stunned at the way Teresa casts herself as a "third worlder" and "daughter of Africa," a wretched-refuse-of-your-teeming-shore sort of immigrant rather than a "White Mischief" émigré, the daughter of a prosperous Portuguese doctor in colonial Mozambique who met John Heinz when they were studying in Switzerland. When Mrs. Kerry presents herself as an African-American or says, "I'm an immigrant, too," and when her son Chris Heinz says he's looking forward to the day when there is a "first-generation American" in the White House, it doesn't always strike the empathetic chord with Hispanic and black audiences that the campaign hopes for.
- Out of Africa, Maureen Dowd, New York Times.
Agust skrifaði kl. 22:42
Flokkun: Ameríka , Stjórnmál

júlí 16, 2004

Rauð hverfi í Bretlandi

Skv. frétt Guardian, Blunkett unveils plan for legalised brothels, eru nokkrar líkur á að innan fárra missera verði vændi leyft í nokkrum hverfum í Bretlandi.
Starfsfólk ákveðinnar tegundar "nuddstofa" og "gufubaða" munu án efa fagna auknu starfsöryggi.
The paper says current law - under which it is legal for one person to operate from a flat as a prostitute - should be amended to allow two or three prostitutes to work from the same address.
Nú er að sjá hvernig stjórn Verkamannaflokksins vinnur úr niðurstöðum þessarar skýrslu. Það kæmi ekki á óvart að Íhaldsflokkurinn myndi setja sig mjög á móti þessum tillögum, enda þingmenn hans þekktari fyrir að nýta sér þjónustu vændiskvenna en að vilja bæta atvinnuréttindi þeirra.
Agust skrifaði kl. 13:42
Flokkun: Jafnréttismál , Lög&réttur

júlí 15, 2004

"You don't have to be a pompous old fart to be an ambassador."

Athyglisvert viðtal við Craig Murray, sendiherra Breta í Tashkent. Hann hefur farið að sumum finnst út fyrir starfssvið sitt með því að láta mannréttindi, eða öllu heldur brot á þeim, í landinu sig varða.
Hinn 43 ára gamli Murray hafði átt óvenju skjótan frama í utanríkisráðuneyti Breta. Starfaði við góðan orðstýr í Afríku og átti í þrígang að heiðra hann af drottningunni en finnst "letters after his name "not his thing"".
Nú er hann hinsvegar, ef svo má segja, einn og yfirgefinn. Búinn að vera. Framinn farinn í vaskinn, konan farin og heilsan að gefa sig.
The FCO insists Murray represents its point of view, yet is remarkably nervous about this interview, contacting Murray and myself several times on the day before we meet. Its concern is understandable: Murray is not discreet. As he himself admits: "There is no point in having cocktail-party relationships with a fascist regime." He says he advocates a new style of ambassadorship, one that is more down to earth and less stuffy. "You don't have to be a pompous old fart to be an ambassador."
Segir ódiplómatíski diplómatinn, sem hefur þó náð að vekja umtalsverða athygli á mannréttindabrotum öryggissveita Islams Karimov forseta, sem praktísera m.a. nauðganir með brotnum glerflöskum og sjóða af fólki útlimi með heitu vatni, nú eða heilsjóða ættingja ódællra borgara og senda heim.
Agust skrifaði kl. 12:41
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

Eyðnibarátta Botswana

Athyglisverð grein í Guardian um baráttuna gegn eyðni í Botswana. Þar eru 37% fullorðina eyðnismitaðir, aðeins í smáríkinu Swasilandi er hlutfallið verra. Engu að síður hefur Botswana náð furðugóðum árangri. Botswanska módelið er hinsvegar að stóru leyti hægt að þakka betri infrastrúktur, meiri stöðugleika og betra efnahagsástandi í landinu en almennt gerist í Afríku sunnan Sahara.
Botswana: a beacon of hope in Africa
Agust skrifaði kl. 12:10
Flokkun: Afríka , Development , Mannlíf á jörðu

júlí 14, 2004

Rétturinn að deyja

Oregoninn Nicholas Kristof skrifar pistil í NYT um lög sem tóku gildi í Oregon-fylki árið 1997, sem heimiluðu fólki að "deyja með sæmd" þótt það útheimti bannvæna lyfjagjöf frá lækni: Choosing Death
All in all, the Oregon law has provided the world with a model for how to offer dying people a real choice about how they should bid farewell to the world.
Hollendingar hafa svipaða löggjöf og ef ég man rétt þá hefur fólki í a.m.k. einhverjum kantónum Sviss rétt til að deyja. Annars staðar er lifandi fólki bannað að deyja að eigin ósk. Mishá viðurlög liggja við því að aðstoða fólk í slíkum hugleiðingum. Hinum látna eru þó sjaldnast refsað, brjóti viðkomandi lögin, nema auðvitað ef hann/hún er kaþólikki.

Fyrir nokkrum árum skrifaði ég pistil á Frelsi.is um líknardráp.
Agust skrifaði kl. 11:55
Flokkun: Ameríka , Heimspeki , Lög&réttur , Mannlíf á jörðu , Meðmæli

Fréttin sem mun gleymast

Þegar ráðist er á konu í lest í París og swastika dregin með túss á maga hennar, ungbarn hennar fellur úr kerri sinni þegar henni er velt um koll og franskir stjórnmálamenn birtast á eftir í sjónvarpi ævareiðir vegfarendum fyrir að koma samborgurum sínum ekki til hjálpar og berjast gegn rasískum glæpum - þá er það frétt.
Þegar kemur svo í ljós að þetta var allt saman plat, þá er það kannski ekki alveg eins mikil frétt, eða hvað?
Agust skrifaði kl. 9:06
Flokkun: Fréttir

júlí 12, 2004

Ms. bin Laden

Athyglisvert viðtal við "frú bin Laden" í Guardian í dag: Meet the in-laws
Carmen bin Laden er sviss-írönsk, fyrrverandi eiginkona Yeslams bin Laden, eins af eldri bræðrum Osama. Hún segir frá lífi sínu, nýútkominni bók sinni og hvernig er að vera ásamt dætrum sínum eina fólkið á vesturlöndum sem bera fjölskyldunafnið alræmda.
Agust skrifaði kl. 12:54 | Comments (1)
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

júlí 09, 2004

Bíllinn sem segir nafnið sitt

Í fyrradag sá ég "bílinn sem segir nafnið sitt", Trabant, á Hafnarfjarðarveginum. Lenti á eftir honum þegar hann var að taka fram úr rútu undir Arnarnesbrúnni. Kemst þó hægt fari er ekki gæfuríkt lögmál í framúrakstri en þegar halla tók undan fæti, niður í Kópavoginn, bætti Trabbinn við sig. Mér til mikillar furðu náði hann 95 km/klst. (niður í móti).
Eitt sinn sá ég Trabant keppa í rallý-akstri, fyrir svona 7-8 árum síðan. Hann náði líka merkilega miklum hraða - niður í móti.
Ég er samt ekki frá því að ég hafi orðið vitni að nýju Íslandsmeti í hraðakstri á Trabant þarna í fyrradag. Ekki það að mig grunar hvernig bílstjórinn náði þessum hraða. Hann hefur stigið á kúplinguna.

Trabantinn er einn af þessum bílum sem maður saknar af götum bæjarins. Fjölbreytileiki íslenska bílaflotans fer síversnandi. Fram undir fall kommúnismans voru tegundirnar fleiri. Samhliða brottfalli austantjaldsbílanna hurfu amerískir bensínhákar líka af götunum, sem er skemmtileg tilviljun. Eftir lifa nær eingöngu japönsk og þýsk merki. (Reyndar fagna ég því að franskir eru að sækja í sig veðrið síðustu misseri).
Agust skrifaði kl. 11:42 | Comments (4)
Flokkun: Daglegt líf

Þjónustufulltrúinn rekinn?

Í Viðskiptablaði MBL í gær sá ég frétt þess efnis að Íslandsbanki sé búinn að segja upp samningi sínum við auglýsingastofuna Fídon.
Sú stofa ber ábyrgð á Halldóru Geirharðs-þjónustufulltrúanum.

Ef þetta þýðir að auglýsingarnar óþolandi verði teknar úr umferð er það fagnaðarmerki.
Agust skrifaði kl. 11:36 | Comments (1)
Flokkun: Viðskipti

júlí 06, 2004

A strong supporter

President Bush will welcome Prime Minister David Oddsson of Iceland to the White House on July 6, 2004. Iceland is a valued friend and ally of the United States, making key contributions to NATO operations in Afghanistan and the Balkans. Prime Minister Oddsson, the longest-serving elected leader in Europe, is a strong supporter of the international effort to bring peace and democracy to Iraq. The President and Prime Minister Oddsson will discuss a range of issues, including combating terrorism, Iraq and the Broader Middle East, NATO issues in the wake of the Istanbul Summit, and bilateral economic and defense cooperation.
- Statement by the Press Secretary, Hvíta húsið, 30. júní 2004
Agust skrifaði kl. 10:09 | Comments (1)
Flokkun: Ísland

júlí 05, 2004

Fox-Jazeera

Besti pistlahöfundur Vesturheims, Nicholas Kristof, skrifar um al-Jazeera:
I'm not a big fan of Al Jazeera, which tends to be emotional and nationalistic. As U.S. Lt. Josh Rushing astutely notes in "Control Room," Al Jazeera is the Arab version of the Fox News Channel: "It benefits Al Jazeera to play to Arab nationalism because that's their audience, just like Fox plays to American patriotism, for the exact same reason — American nationalism — because that's their demographic audience and that's what they want to see."
- Al Jazeera: Out-Foxing Fox (NYT)
Agust skrifaði kl. 13:19 | Comments (1)
Flokkun: Ameríka , Meðmæli , Mið-Austurlönd , Stjórnmál

The Madness of President George

Á þjóðhátíðar-/sjálfstæðisdegi Bandaríkjanna skrifaði Barbara Ehrenreich smellna hugleiðingu í New York Times. Þar ber hún (ekki) saman Georg III. (sbr. "The Madness of King George") og Georg II. W. Bush.
George III is accused, for example, of "depriving us in many cases of the benefits of Trial by Jury." Our own George II has imprisoned two U.S. citizens — Jose Padilla and Yaser Esam Hamdi — since 2002, without benefit of trials, legal counsel or any opportunity to challenge the evidence against them. Even die-hard Tories Scalia and Rehnquist recently judged such executive hauteur intolerable.
- Their George and Ours (NYT)
Agust skrifaði kl. 12:48
Flokkun: Ameríka , Meðmæli , Saga , Stjórnmál

Kosningapróf Clintons

In his book tour, Bill Clinton has been defending the 60's, noting that the polarization of American politics began with the civil rights, women's rights, gay rights and abortion rights struggles of the 60's and the assassinations of Robert Kennedy and Martin Luther King. "If you look back on the 60's and on balance, you think there was more good than harm, then you're probably a Democrat," he told a Chicago audience. "If you think there was more harm than good, you're probably a Republican."
- Maureen Dowd: Not Feeling Groovy (NYT)
Agust skrifaði kl. 12:43
Flokkun: Ameríka , Meðmæli

Öfga-Gyðingar gerast herskárri

Skv. frétt ABC News, Extremist Jews Said Becoming More Militant, eru bókstafstrúar-Gyðingar í Ísrael að verða æ herskárri.
Agust skrifaði kl. 12:36
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd