ágúst 12, 2004
Hiti og sviti
Gærdagurinn var tvímælalaust heitasti dagurinn sem við Suðurvesturlandsbúar höfum upplifað.Að því tilefni tók ég mér frí eftir hádegið, ætlaði að fara á hestbak en veðrið er einum of gott til þess. Lá þess í stað úti á palli og las í nýjustu bók J. Baghwati, drakk bjór en aðallega svitnaði undan sjálfum mér milli þess sem ég lagði mig. Hitamælirinn í skugga var í kringum 30 gráðurnar.
Í gærkvöldi fór ég svo að stússast í kringum hestana. Þurfti að gera við hlið á girðingu og hlaupa á eftir hestum. Bullsvitnaði í stuttermabol enda var hitinn 18-19 stig þegar ég fór í bæinn á miðnætti.
Hugsa sér ef það gerði svona veður í nokkrar vikur á hverju sumri. Hvað kúltúrinn myndi breytast við það hjá okkur - til hins betra. Hvað það væri nú líka bærilegra að búa hérna!
Agust skrifaði 12.08.04 09:19
Flokkun: Daglegt líf