ágúst 16, 2004
Bolli formaður
Bolli Thoroddsen var réttkjörinn formaður Heimdallar á laugardaginn. Það gleður mig.Í fyrra studdi ég framboð hans, sem sigrað hefði kosningarnar hefði þáverandi (fráfarandi) stjórn Heimdallar verið að meirihluta setin heiðvirtu fólki.
Í ár studdi ég vini og kunningja mína í kringum framboðið líkt og óflokksbundnum manni úr öðru kjördæmi er unnt. Ég tók ekki eins virkan þátt og í fyrra en gat vel samgleðst hópnum á laugardagskvöldið. Við Þórir kíktum í sigurpartý Bláa fólksins og var sigurvíman þar þrælsmitandi.
Ég óska Bolla, Ými, Tomma, Sellu og öllum hinum enn og aftur til hamingju með kjörið. Nú er að standa við stóru orðin.
Agust skrifaði 16.08.04 12:34
Flokkun: Stjórnmál , Ísland