ágúst 18, 2004

Kokteilbarinn minn

Að spila tónlist á vinnustað er jafn vandmeðfarið atferli og að klóra sér á almannafæri. Hægt er að gera það þannig að enginn spái í það en hægt er að hreinlega misbjóða fólki ef rangt er að farið. Þetta á sérstaklega við þar sem fólk á öllum aldri vinnur krefjandi vinnu sem þarfnast einbeitingar.

Ég get ekki hlustað á íslenska útvarpsmenn lengi í einu og gagnvart sumum hef ég hreinlega þróað með mér stæka fóbíu. Þess vegna hef ég, þar sem mér finnst mun þægilegra yfirleitt að hafa einhverja tónlist í eyrunum en þögnina við vinnu, tekið með mér geisladiska í vinnuna. Ég hef alltaf íhugað þetta en þar sem ég var áður alltaf með útvarp lét ég það duga, enda var þá hægt að hlusta á BBC á Íslandi, sem ég hlustaði nær undantekningarlaust á. Hinsvegar hafði ég ekkert útvarp fyrstu dagana og þurfti að koma með eitt slíkt að heiman. Lá beinast við að taka það sem ég var með við skrifborðið mitt heima og það er með geislaspilara. Eftir að hafa fengið ógeð af íslensku útvarpi fór ég að bera með mér diska í vinnuna líka.

Og þar með stóð ég frammi fyrir áðurnefndu vandamáli. Niðurstaðan var að einskorða sig við jazz. Í sumar hef ég því spilað ýmiskonar jazz. Noruh Jones í rigningu, slóvenskan í morgunsárið og bossanova í blíðviðrinu. Miles Davis diskurinn hefur fengið reglulega spilun frá upphafi en annars hef ég reynt að skipta um diska reglulega.

Ég spila þetta yfirleitt lágt. Svona einsog background tónlist og enginn hefur kvartað. Þvert á móti.

Ég hafði hinsvegar svolítið gaman að því á dögunum þegar ein stoppaði í dyragættinni hjá mér á leið eftir ganginum og sagði: "Það er alltaf einsog að koma inn á kokteilbar að koma til þín".

Mér fannst þetta svolítið fyndið.
Agust skrifaði 18.08.04 15:47

Flokkun: Daglegt líf
Comments

Þetta gæti verið áhugaverð viðbót við þessar pælingar. Lofa manni að sjá hvað þú ert að hlusta á.

Ég er mjög hrifinn.

http://www.audioscrobbler.com/

bió skrifaði 18.08.04 17:09

Einhvern veginn er ég alltaf skeptískur á forrit sem "fylgjast með" manni. Sérstaklega þeim sem gera það með "útrænum" hætti í gegnum internetið.

Ágúst skrifaði 18.08.04 18:35

Þú um það. Mér finnst þetta allavega sniðugt og gagnlegt. Mæli með þessu.

...en auðvitað er ég hlutdrægur því ég vil með "útrænum hætti" fylgjast með því hvað þú ert að hlusta ;)

bió skrifaði 18.08.04 21:13

Ég mæli með Time Out með Dave Brubeck ef þú hefur áhuga á Jazz.

http://www.amazon.com/exec/obidos/tg/detail/-/B000002AGN/ref=pd_bxgy_img_2/104-0393640-1973542?v=glance&s=music

kveðja,
Binni

Brynjar Örn skrifaði 20.08.04 13:30