ágúst 20, 2004

Edward Kennedy, flugræningi

Við vitum að dirty tricks er hvergi notuð í pólitík (meðal vestrænna þjóða) af eins mikilli óskammfælni og í Bandaríkjunum.

Maður hefði þó seint trúað því að repúblikanar myndu skrá Edward Kennedy, senator frá Massachusetts, einn þekktasta senator Bandaríkjanna, sem hryðjuverkamann. Hann kann að vera þeim þyrnir í augum, kann að pirra þá fyrir að vera einn fárri bandaríska þingmanna sem myndu ekki teljast til hægrimanna í Evrópu - en að brennimerkja karlinn sem hryðjuverkamann? Það er nú m.a.s. fulllangt gengið fyrir ráðamenn í Hvíta húsinu.

Þeir reyndar gerðu það ekki - nema óbeint. Í "öryggiskerfinu" sem sía á út alla meinta hryðjuverka frá því að kaupa sér flugmiða í Bandaríkjunum (það er sumsé kenningin) og dulnefni sem einn hryðjuverkamannanna sem Bandaríkjamenn þykjast getað stoppað með tölvukerfinu sínu er Edward Kennedy.

Silfurhærði, há-írski senatorinn frá Boston var stoppaður fimm sinnum á rúmum mánuði fyrr á árinu. Verandi einn valdamesti demókratinn í Washington fékk Kennedy nafn sitt út af listanum - en það tók nokkrar vikur. Venjulegir borgarar, sem hafa ekki setið í öldungadeildinni í áratugi eiga heldur erfiðara með að fá aftur réttinn til að kaupa flugmiða, lendi það í sömu stöðu og senatorinn, sem sagði um málið í þinginu:
At the hearing, Mr. Kennedy wondered how ordinary citizens could navigate the tangled bureaucracy if a senator had so much trouble. "How are they going to be able to get to be treated fairly and not have their rights abused?" he asked.
Sjá nánar í NYT: Senator? Terrorist? A Watch List Stops Kennedy at Airport
Agust skrifaði 20.08.04 11:30

Flokkun: Ameríka , Stjórnmál
Comments

What can I say - Land of the free, home of the brave!

Ragnar skrifaði 21.08.04 10:53