ágúst 23, 2004
Tútsar
Í nýjasta hefti Economist, sem íslenskir áskrifendur fengu inn í lúguna hjá sér í dag, er umfjöllun um stöðu Tútsa, The “Jews” of Africa. Sú umfjöllun útskýrði fyrir mér a.m.k. söguna á bak við fjöldamorðin í Rwanda og Búrúndí fyrir sléttum 10 árum síðan, nokkuð sem ég hafði aldrei almennilega kunnað skil á í almennilegu samhengi, enda nokkuð sem menn eru ekki á eitt sáttir um hvernig beri að skilja. Óhætt að mæla með greininni, sem lætur svosem ekki mikið yfir sér í blaðinu sjálfu. Á Economist.com er greinin því miður "læst" og aðeins opin áskrifendum.Agust skrifaði 23.08.04 20:22
Flokkun: Afríka , Meðmæli , Saga