ágúst 30, 2004
Jeremy Clarkson
Ónei! Top Gear verður líklega tekinn af dagskrá BBC. Mark Thompson, forstjóri Breska ríkisútvarpsins, hefur kynnt hugmyndir sínar um framtíð menningarrisans ríkisrekna."In genres where the BBC does not have a paramount mission some of the light factual genres, leisure and lifestyle, format documentary, reality, some forms of general entertainment we have to be very sure that we really are adding something distinctive and original and valuable within each genre," he said [and] singled out the motoring show Top Gear and the recent Jimmy's Farm about a young man trying to make a living as a pig farmer as lifestyle and reality programmes that fulfil these criteria, but added there was "a temptation to give in to the derivative and the tired to move away from public value" in these genres.Sjá Independent, Corporation 'must ditch reality TV in its latest reinvention'.
Nú gæti mér ekki staðið meira á sama um Jimmy svínabónda en Top Gear, undir stjórn Jeremys Clarkson (sem raunar skrifar oft smellna pistla í Sunday Times), eru skemmtulegustu bílaþættir sem ég séð. Þeir hafa akkúrat ekkert með notagildi að gera. Þrír smurolíunördar keppast við að prufukeyra allskonar lúxusbíla sem fæstir kosta innan við 50 þús. pund. Og tilgangurinn? Hverjum er ekki sama, þetta er stórkostlegt sjónvarpsefni!
E.t.v. ekki sannfærandi lýsing fyrir þann sem hefur ekki séð þættina, sem ég veit til að sumar ríkissjónvarpsstöðvarnar á Norðurlöndum hafa keypt til sín. Þættirnir eru nefnilega ekki um mótorsport eða nýja bíla sem slíka, heldur skemmtiefni. Breskt afþreyingarefni einsog það gerist best - og einfaldast.
Konur fá kannski ekki mikið fyrir sinn snúð, þótt James May fái víst fjölda aðdáendabréfa frá bresku kvenþjóðinni.
Þættirnir eru eins breskir og þeir geta orðið. Dómarnir óvægnir á köflum en fyrst og fremst ná þeir að halda manni föngnum á einhverjum "strákskap" sem einkennir þættina líklegast meira en nokkuð annað. Þegar þeir stilla gömlum Toyota Hilux upp á þaki á blokk sem er síðan sprengd niður til grunna (og hann fór í gang eftir smá viðgerð, þar sem aðeins mátti nota einn skiptilykil + setja á hann bensín og olíu), aka nýjum Audi A8 Diesel til Edinborgar frá London og aftur til baka - á einum tanki! - og þar fram eftir götunum. Einn daginn tóku þeir þrjá tíu milljóna króna sportbíla niður á strönd, til að athuga hver væri hraðskreiðastur þeirra á sandi... og eitt sinn fannst Jeremy nýr Vauxhall vera svo mikið betur útbúinn fyrir aftursætisfarþegana en þá sem sátu fram í að hann límdi kústsköft við bremsuna og bensíngjöfina og batt snæri um stýrið. Og þannig stýrði hann Vectrunni, úr aftursætinu.
Top Gear er entertainment, ekki einhver leiðinda lífsstílsþáttur. BBC-menn mega henda út um gluggan þáttum um svínarækt og ef til er leiðinlegra sjónvarpsefni en Big Brother, hef ég sannarlega ekki fundið það (lætur Survivor líta út einsog hágæðaefni!). Top Gear eru góðir þættir og skemmtilegir og ég vona sannarlega að Mark Thompson fari ekki að gera mér og öðrum aðdáendum þáttanna um allan heim (gleymum því ekki að þeir hafa verið sýndir á BBC World um allan heim) þann grikk að taka Jeremy og félaga af dagskrá. Þar með væri BBC að taka af dagskrá eina bestu "strákaþætti" sem þeir hafa framleitt.
Og ef þetta var ekki með öllu tilgangslaus færsla, þá veit ég ekki hvað. Rífast yfir breytingum á breskri sjónvarpsdagskrá, sem fæstir sjá hér á landi, svei mér þá.
Agust skrifaði 30.08.04 18:24
Flokkun: Menning
Comments
Top Gear eru náttúrulega snilld!
Væri synd og skömm ef þættirnir væru teknir af dagskrá!
Óli skrifaði 31.08.04 09:53