september 21, 2004

Cohen

Ef Bob Dylan er guđ ţá er Leonard Cohen spámađur hans.

Cohen, sem er sjötugur í dag, gaf frá sína fyrstu plötu á miđjun fertugsaldri. Ţá var hann ţegar orđinn frćgur fyrir skáldskap og frjálsan lífsstíl heima í Kanada. Sagan segir raunar ađ hann hafi gerst tónlistarmađur ţví ţađ borgađi betur en ljóđabókmenntirnar.

Raunar hefur hann gefiđ út frekar fáar plötur og hann er e.t.v. ekkert svo rosalega frćgur - nema í Noregi. Ţar er hann víst vinsćlastur utan heimalandsins Kanada, a.m.k. ef miđađ er viđ höfđatölu. Plöturnar eru ekki nema 13 (međ tónleikaútgáfum). Ég hef hinsvegar alltaf sagt ađ The Songs of Leonard Cohen sé í raun ţađ sem er nóg fyrir flesta ađ eiga. Hún er líka algjör skyldueign enda er hún ein af 3-4 mest spiluđu plötunum mínum. Ef ég ćtti hana á vínyl vćri ég eflaust kominn í gegn!

Cohen spilađi í Laugardalshöllinni fyrir ca. 15 árum síđan og voru ţađ víst međ hans bestu tónleikum. Ef marka má DV í dag er til upptaka af ţeim tónleikum hjá Ríkissjónvarpinu. Sú spóla er ţá enn eitt gulliđ sem RÚV liggur á án sjáanlegrar ástćđu.
Agust skrifađi 21.09.04 20:52

Flokkun: Menning
Comments

Tónleikarnir voru í Laugardalshöllinni í júní mánuđi 1988 föstudaginn fyrir háskólaútskriftina og voru hreint út sagt "Divine"! Ég man ţetta mjög vel ţví ég var enn í trans ţegar ég tók viđ sönnunargagninu um ţađ ađ nú vćri ég orđin cand júr daginn eftir.

Sigga í landi Túlípanans

Sigga Loga skrifađi 22.09.04 13:03

Ég var líka á ţessum tónleikum, Bubbi Mortens og fleiri. Ţeir voru stórkostlegir.

Binni skrifađi 01.10.04 09:24