september 22, 2004

Bíllausa umferðaröngþveitið

Skemmtileg fyrirsögn: Umferðarhnútar víða í Evrópu á bíllausum degi.
Trúa menn virkilega að svona "átak" virki? Septemberveðrið á Íslandi er heldur ekki beint vel til þess fallið að þetta átak slái í gegn. "Hjólað í vinnuna", sem hefur verið yfir hásumarið, hefur tekist betur. Úti í álveri hjóla nokkrir menn á hverjum degi í vinnuna, frá vori fram á haust. Í rigningarslagviðri þegar maður ók fram hjá þeim gat maður ekki annað en dáðst að þróskunni í þeim - sem er nauðsynleg fyrir hjólreiðamenn á Íslandi.
Agust skrifaði 22.09.04 13:27

Flokkun: Fréttir , Ísland