september 26, 2004

Slóvenía

Athyglisvert að sjá Spectator hallmæla einkavæðingu - en réttilega, einkavinavæðing að rússneskum hætti hefur lítið með góða hagfræði að gera.
Slovenia is so small that nobody pays the place much attention. This has allowed the country to pursue ‘steady-as-she-goes’ economic policies without anyone bothering to demand the mass larceny which is known as privatisation, and which has so ravaged the economies of most other former communist states. In Slovenia, the old Yugo-Commie leadership which had made the place the most prosperous part of a fairly prosperous country remained in power throughout the 1980s and 1990s. Consequently about half of the Slovene economy remains in state hands. True conservatives will understand that this refusal to submit fully to ‘shock therapy’ — which is all shock and no therapy — has been a good thing. The theory of ‘creative destruction’ which has led to the mass closure of industry and agriculture elsewhere in the ‘new Europe’ has not caused e-commerce and Internet start-ups; instead, most of post-communist Europe is an unmitigated desert of urban blight, prostitution, glue-sniffing and emigration. But Slovenia ticks along quite nicely, thank you.
Slóvenía er fallegt land með litla höfuðborg. Því miður á ég eftir að koma myndunum mínum frá Ljubljana, m.a. af skemmtilegu veggjakroti. Ég var einmitt í borginni daginn fyrir Evrópuþingskosningarnar. Kosningaáróður með rauðum kratarósum upp um alla veggi. Ég stoppaði því miður ekki nema hálfan dag í Ljubljana en varð yfir mig hrifinn af fólkinu. Ræðnara fólk hefur maður vart hitt. Háskólanemarnir sem ég spjallaði við voru flúent á ensku, enda slóvenskan ekki aðeins frekar ólík öðrum austurevrópskum tungum heldur með mjög flókinni málfræði. En nóg um það, mér þótti gaman að sjá þetta í há-breska íhaldsblaðinu Spectator.
Agust skrifaði 26.09.04 15:26

Flokkun: Evrópusamvinnan , Hagfræði , Meðmæli
Comments

Ég var í Slóvó í 4 daga í vor. Æðislegt land á hæfilegri siglingu og Ljubljana er yndisleg. Annars varð ég ekki vör við góða enskukunnáttu landsmanna - en því meira meðvituð um lélega þýskukunnáttu sjálfrar mín :) Mæli með þessu áður en það verður allt vaðandi í bónustúrisma þarna.

Heiða skrifaði 26.09.04 17:26

Jamm. Í Króatíu var ég minntur á fábrotinn orðaforða minn í þýsku. Engu að síður ók ég frá Króatíu í gegnum Slóveníu og til Ítalíu með Bosníu-Króata sem flúði efnahagsástandið heima fyrir þar sem hann fékk enga vinnu sem tæknifræðingur og fór að vinna í túrismanum í Istríu. Þar sem ferðalagið var á þriðja klukkutíma var annaðhvort að láta reyna á fábrotnu þýskuna mína eða enn verri enskukunnáttu hans. Því töluðum við þýsku alla leiðina og raunar kjöftuðum við allan tímann um heima og geima. Stóri plúsinn í því öllu saman var að hann var meira en til í að tala um innlenda pólitík, Evrópusambandið og nationalisma á Balkanskaga.

Ég hef aldrei verið jafn feginn að hafa þó aðeins lagt mig fram við þýskunámið. Samfellt æfingarleysi árum saman bætir ekki litla kunnáttu sem fyrir var en það er ekki laust við að maður óski þess að þýskukennslan hefði verið markvissari á meðan á henni stóð en ekki algjörlega á villigötum einsog í mínu tilfelli í Verzló.

Það breytir því ekki að maður með mín áhugamál finnur sífellt fyrir því hversu mikil fötlun það getur verið að hafa ekki lært stakt orð í frönsku.

Aftur á móti skilst mér á þeim sem til þekkja að þýskukunnátta almennt í Austur-Evrópu sé af flestum stórlega ofmetin. Þar er hún bæði aldurs- og mjög svæðisbundin.

Ágúst skrifaði 26.09.04 18:37

Já það er rétt - málakunnáttan er að verða æ mikilvægari. Ég spekúlera á hverju hausti í því að skella mér í upprifjun á þýskunni og grunnnámskeið í frönsku en það verður aldrei neitt úr því. Ég finn alltaf meira og meira fyrir því hvað maður er fatlaður að hafa orðið of comfortable í enskunni í staðin fyrir að æfa sig í hinum evrópumálunum :) Maður verður bara að gera eitthvað í þessu - finna skiptinema og blaðra sig bláan í framan eða eitthvað.

Varstu lengi í Istria? Ég nefnilega rétt stoppaði þar í rútu og fór á eitthvað safn með fyndnasta unglinga-safnverði sem ég hef nokkurn tíman séð :D Hefði gjarnan viljað vera þar lengur.

Heiða skrifaði 26.09.04 20:01

Ég grét það frekar þegar ég var í Ljubljana að kunna ekki slóvensku, annars voru þeir fínir í enskunni sem ég talaði við og með afbrigðum gestrisið fólk

Ásgeir skrifaði 29.09.04 19:43