september 30, 2004

Ný formúla

Formúla-1 keppnin hefur nú fengið samkeppni.
A1 keppnin er sett upp af Dubai prinsinum Sjeik Maktoum Hasher Maktoum al-Maktoum, bróðursonur krónprinsins af Dubai. Helsti munurinn á "nýju formúlunni" er:
  • Allir bílarnir eru eins. Ekkert óþarfa tæknidrasl, þannig þeir munu spóla, skransa og snúast ef ökumönnunum verður á í messunni.
  • Ekki er keppt meðal bílasmiða (skiljanlega) og þess í stað keppa þjóðir sín á milli, landslið mætti kalla liðin.
  • Styrktaraðilarnir á bak við hvern ökumann verða að vera "innlendir". Aukin heldur mega ökumenn ekki keppa fyrir lönd nema að hafa að minnsta kosti mikil fjölskyldutengsl þar.
  • Viðkomandi "svæðisstjóri" kaupir sér franchise fyrir sitt svæði (yfirleitt lönd en Suður-Afríku tilheyra t.d. öll löndin sunnan Sahara). Svæðisstjórinn ræður ökumann (innan svæðisins), verkfræðinga etc. Leyfinu fylgja tekjur af útsendingum, sölu af ákveðnum varningi o.fl.
  • A1-félagið sjálft sér um að flytja bílana á milli keppnisstaða, skaffar bílana sjálfa, tryggir "hámarksávinning" af sjónvarpsútsendingum o.fl.
Ég bíð spenntur yfir að keppnin fer af stað næsta haust. Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna keppni sem þessi sé ekki kominn á koppinn: Þar sem keppt er á kröftugum bílum sem allir eru eins, þannig að keppnin er á "jafningjagrundvelli" og snýst um aksturkeppni en ekki verkfræðikeppni.
Agust skrifaði 30.09.04 18:47

Flokkun: Viðskipti