september 30, 2004

Ný formúla

Formúla-1 keppnin hefur nú fengið samkeppni.
A1 keppnin er sett upp af Dubai prinsinum Sjeik Maktoum Hasher Maktoum al-Maktoum, bróðursonur krónprinsins af Dubai. Helsti munurinn á "nýju formúlunni" er:
  • Allir bílarnir eru eins. Ekkert óþarfa tæknidrasl, þannig þeir munu spóla, skransa og snúast ef ökumönnunum verður á í messunni.
  • Ekki er keppt meðal bílasmiða (skiljanlega) og þess í stað keppa þjóðir sín á milli, landslið mætti kalla liðin.
  • Styrktaraðilarnir á bak við hvern ökumann verða að vera "innlendir". Aukin heldur mega ökumenn ekki keppa fyrir lönd nema að hafa að minnsta kosti mikil fjölskyldutengsl þar.
  • Viðkomandi "svæðisstjóri" kaupir sér franchise fyrir sitt svæði (yfirleitt lönd en Suður-Afríku tilheyra t.d. öll löndin sunnan Sahara). Svæðisstjórinn ræður ökumann (innan svæðisins), verkfræðinga etc. Leyfinu fylgja tekjur af útsendingum, sölu af ákveðnum varningi o.fl.
  • A1-félagið sjálft sér um að flytja bílana á milli keppnisstaða, skaffar bílana sjálfa, tryggir "hámarksávinning" af sjónvarpsútsendingum o.fl.
Ég bíð spenntur yfir að keppnin fer af stað næsta haust. Ég hef oft velt fyrir mér hvers vegna keppni sem þessi sé ekki kominn á koppinn: Þar sem keppt er á kröftugum bílum sem allir eru eins, þannig að keppnin er á "jafningjagrundvelli" og snýst um aksturkeppni en ekki verkfræðikeppni.
Agust skrifaði kl. 18:47
Flokkun: Viðskipti

september 29, 2004

Til hamingju með nýja hæstaréttardómarann!

Agust skrifaði kl. 16:02 | Comments (1)
Flokkun: Fréttir , Lög&réttur , Ísland

september 26, 2004

Slóvenía

Athyglisvert að sjá Spectator hallmæla einkavæðingu - en réttilega, einkavinavæðing að rússneskum hætti hefur lítið með góða hagfræði að gera.
Slovenia is so small that nobody pays the place much attention. This has allowed the country to pursue ‘steady-as-she-goes’ economic policies without anyone bothering to demand the mass larceny which is known as privatisation, and which has so ravaged the economies of most other former communist states. In Slovenia, the old Yugo-Commie leadership which had made the place the most prosperous part of a fairly prosperous country remained in power throughout the 1980s and 1990s. Consequently about half of the Slovene economy remains in state hands. True conservatives will understand that this refusal to submit fully to ‘shock therapy’ — which is all shock and no therapy — has been a good thing. The theory of ‘creative destruction’ which has led to the mass closure of industry and agriculture elsewhere in the ‘new Europe’ has not caused e-commerce and Internet start-ups; instead, most of post-communist Europe is an unmitigated desert of urban blight, prostitution, glue-sniffing and emigration. But Slovenia ticks along quite nicely, thank you.
Slóvenía er fallegt land með litla höfuðborg. Því miður á ég eftir að koma myndunum mínum frá Ljubljana, m.a. af skemmtilegu veggjakroti. Ég var einmitt í borginni daginn fyrir Evrópuþingskosningarnar. Kosningaáróður með rauðum kratarósum upp um alla veggi. Ég stoppaði því miður ekki nema hálfan dag í Ljubljana en varð yfir mig hrifinn af fólkinu. Ræðnara fólk hefur maður vart hitt. Háskólanemarnir sem ég spjallaði við voru flúent á ensku, enda slóvenskan ekki aðeins frekar ólík öðrum austurevrópskum tungum heldur með mjög flókinni málfræði. En nóg um það, mér þótti gaman að sjá þetta í há-breska íhaldsblaðinu Spectator.
Agust skrifaði kl. 15:26 | Comments (4)
Flokkun: Evrópusamvinnan , Hagfræði , Meðmæli

september 25, 2004

Kynslóð Gísla Marteins

Athyglisvert að heyra Gísla Martein Baldursson, 32 ára, tala við Sölva Blöndal í Quarashi, 29 ára, einsog hann gæti (hið minnsta) verið faðir hans.
"Þín kynslóð..." spyr hann og skýrskotar sjálfsagt til áhorfenda sinna, sem flestir eru á sjötugsaldri.
Agust skrifaði kl. 20:12 | Comments (1)
Flokkun: Menning

september 22, 2004

Högni Stefáns í klandri

Fyrir nokkrum vikum sagði ég frá frétt í NYT þess efnis að Edward Kennedy hefði verið stoppaður nokkrum sinnum vegna þess að "öryggiskerfi" bandarískra yfirvalda áleit hann hryðjuverkamann.

Yusuf Islam, áður þekktur sem Cat Stevens, var stoppaður af sama kerfi:
Transportation Security Administration (TSA) officials said the access was denied "on national security grounds", without giving any further details.
Yusuf Islam is now expected to be put on a flight out of America later on Wednesday.
Four years ago, Mr Islam was deported from Israel over allegations that he backed militant Muslims.
Yusuf Islam er semsagt eitt af nöfnunum (ásamt Edward Kennedy þangað til nýlega) sem "öryggiskerfið" hleypir ekki í gegn.

Yusuf Islam, altso tónlistargoðið fyrrverandi, kennir íslamsfræði í London og hefur gert í nokkur ár. Hann heldur m.a. námskeið fyrir byrjendur í Grand Moskunni. Þegar ég var þar í sumar að skoða mig um og átti langt samtal við mann einn þar bauð hann mér einmitt að koma næsta laugardagsmorgun í moskuna því Yusuf yrði með tíma þá. Ég hefði fyrir það fyrsta ekki tíma til þess þannig ekki fór ég.
Agust skrifaði kl. 13:41
Flokkun: Ameríka

Bíllausa umferðaröngþveitið

Skemmtileg fyrirsögn: Umferðarhnútar víða í Evrópu á bíllausum degi.
Trúa menn virkilega að svona "átak" virki? Septemberveðrið á Íslandi er heldur ekki beint vel til þess fallið að þetta átak slái í gegn. "Hjólað í vinnuna", sem hefur verið yfir hásumarið, hefur tekist betur. Úti í álveri hjóla nokkrir menn á hverjum degi í vinnuna, frá vori fram á haust. Í rigningarslagviðri þegar maður ók fram hjá þeim gat maður ekki annað en dáðst að þróskunni í þeim - sem er nauðsynleg fyrir hjólreiðamenn á Íslandi.
Agust skrifaði kl. 13:27
Flokkun: Fréttir , Ísland

september 21, 2004

Cohen

Ef Bob Dylan er guð þá er Leonard Cohen spámaður hans.

Cohen, sem er sjötugur í dag, gaf frá sína fyrstu plötu á miðjun fertugsaldri. Þá var hann þegar orðinn frægur fyrir skáldskap og frjálsan lífsstíl heima í Kanada. Sagan segir raunar að hann hafi gerst tónlistarmaður því það borgaði betur en ljóðabókmenntirnar.

Raunar hefur hann gefið út frekar fáar plötur og hann er e.t.v. ekkert svo rosalega frægur - nema í Noregi. Þar er hann víst vinsælastur utan heimalandsins Kanada, a.m.k. ef miðað er við höfðatölu. Plöturnar eru ekki nema 13 (með tónleikaútgáfum). Ég hef hinsvegar alltaf sagt að The Songs of Leonard Cohen sé í raun það sem er nóg fyrir flesta að eiga. Hún er líka algjör skyldueign enda er hún ein af 3-4 mest spiluðu plötunum mínum. Ef ég ætti hana á vínyl væri ég eflaust kominn í gegn!

Cohen spilaði í Laugardalshöllinni fyrir ca. 15 árum síðan og voru það víst með hans bestu tónleikum. Ef marka má DV í dag er til upptaka af þeim tónleikum hjá Ríkissjónvarpinu. Sú spóla er þá enn eitt gullið sem RÚV liggur á án sjáanlegrar ástæðu.
Agust skrifaði kl. 20:52 | Comments (2)
Flokkun: Menning

september 19, 2004

Hvíta glerhúsið

Mjög góð grein hjá Kristof í IHT (upphaflega í NYT), um glerhús Bush forseta.
One fall day in 1973, when Mr. Bush was a new student at Harvard Business School, he was wearing a Guard jacket when he ran into one of his professors. The professor, Yoshi Tsurumi, says he asked Mr. Bush how he wangled a spot in the Guard.

"He said his daddy had good friends who got him in despite the long waiting list," recalls Professor Tsurumi, who is now at Baruch College, part of the City University of New York. Professor Tsurumi says he next asked Mr. Bush how he could have already finished his National Guard commitment. "He said he'd gotten an early honorable discharge," Professor Tsurumi recalls. "I said, 'How did you manage that?' "

"He said, oh, his daddy had a good friend," Mr. Tsurumi said. "Then we started talking about the Vietnam War. He was all for fighting it."

Professor Tsurumi says he remembers Mr. Bush so vividly because he was always making outrageous statements: denouncing the New Deal as socialist, calling the S.E.C. an impediment to business, referring to the civil rights movement as "socialist/communist" and declaring that "people are poor because they're lazy." (Dan Bartlett, an aide to Mr. Bush, denies that the president ever made these statements.)
Kristof lýkur greininni með orðunum:
More than three decades later, that shouldn't be a big deal. What worries me more is the lack of honesty today about that past - and the way Mr. Bush is hurling stones without the self-awareness to realize that he's living in a glass house.
Agust skrifaði kl. 17:00 | Comments (1)
Flokkun: Ameríka , Meðmæli , Stjórnmál

september 18, 2004

Stjórnmálasambönd Tævans

Tævan, eða Lýðveldið Kína, einsog ríkisstjórn landsins kýs að kalla það, hefur diplómatísk samskipti við 25 lönd. Flest þeirra eru smáríki, líkt og listinn hér að neðan sýnir. 1971 var Alþýðulýðveldið viðurkennt af SÞ sem hið rétta Kína og missti Tævan þar með sæti sitt hjá SÞ. Átta árum síðar tók Carter stjórnin upp samband við Beijing og þar með var Taipei ekki lengur hið viðurkennda Kína í Washington. Í kjölfarið setti Bandaríkjaþing lög (Taiwan Relations Act) sem tryggðu áfram diplómatískt og hernaðarlegt mikilvægi eyjunnar fyrir Bandaríkin.

Nýlega greindi Economist frá því hvernig Beijing stjórnin hefur reynt að grafa undan þeim fáu stjórnmálasamböndum sem Tævan á ennþá við ríki heimsins. Nú síðast var það Dómíníska lýðveldið.
The stakes are high, and competition fierce. Elsewhere in the world, Macedonia, Nauru and Liberia have recently gone over to Beijing. In the Caribbean, the Bahamas (which has a big Hong Kong-owned container port), and St Lucia (which had a new government) defected in 1997. Kiribati, in the Pacific, plumped for Taiwan last year.


Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 20:38 | Comments (1)
Flokkun: Stjórnmál

One More Cup of Coffee

Er One More Cup of Coffee (af Desire) besta lag Bobs Dylan?

Kannski ekki, en það er tvímælalaust eitt það allra skemmtilegasta að mínu mati.

Það var og.
Agust skrifaði kl. 13:20
Flokkun: Menning

september 16, 2004

Lággjaldaflug frá Køben

Maersk Air (já, sama Maersk og gámaflutningafélagið Maersk) er lággjaldaflugfélag sem flýgur frá Kaupmannahöfn (og reyndar Billund líka). Flugmiðarnir eru á góðu verði, e.t.v. ekki lægsta verðið sem þú finnur en á móti kemur að Maersk flýgur til staða sem fá (eða engin önnur) lággjaldafélög fljúga til. Fyrir Íslendinga sem þurfa hvort eð er að fljúga í gegnum Køben eða London getur þetta verið hentug leið.

Meðal "öðruvísi" staða sem Maersk flýgur til eru Istanbúl, Kaíró og Þórshöfn í Færeyjum. Ódýrt er að fljúga til London fyrir þá sem þangað þurfa að komast frá Kaupmannahöfn og auk þess flýgur félagið til Aþennu, sem er illa sinnt af lággjaldaflugfélögum. Þá flýgur félagið til t.d. Kanarí-eyja, Sikileyjar og Varsjá í Póllandi.

Sniðugast af öllu sniðugu finnst mér þó "stærðarflokkarnir" hjá Maersk Air. Fyrir fullvaxna farþega eru 70 cm. ekki nóg til að komast fyrir í sætunum. Fyrir 200 DKK fær maður aukalega 10 cm. og fyrir 400 DKK færðu heila 90 cm. pláss, sem er það sama Saga Class farþegar fá, nema hvað sætin eru jafn breið eftir sem áður. Mjög sniðugt enda myndi ég kaupa mér 80 cm. sæti hvenær sem það biðist.
Agust skrifaði kl. 11:59 | Comments (1)
Flokkun: Viðskipti

september 10, 2004

Mark Thatcher

Spectator á oft skemmtilega spretti. Í tölublaðinu síðan 4. september er margsinnis pundað á Mark Margrétarson Thatcher, sem nýlega var handtekinn fyrir tengsl við valdaránsplott í Miðbaugs-Guineu. M.a. er heil grein tileinkuð málinu, Help me, wonga, og þetta fannst mér líka smellið:
Mark Thatcher is an archetype with many forebears in English literature, mainly comic: think of Dickens’s Steerforth or Evelyn Waugh’s Apthorpe. Ealing comedy, which delighted in villainous schemes gone wrong, contains a number of Mark Thatcher prototypes, sometimes played by Terry-Thomas. Thatcher’s education at Harrow School, the alma mater of so many impostors and villains, is another exquisite detail.
Annars er Spectator á köflum mjög sérvitringslegt. Heilum dálki í fyrrnefndu tölublaði var t.a.m. eytt í nöldur yfir því hve mikið er lagt á púrtvín, þrátt fyrir síminnkandi eftirspurn. Dálkahöfundurinn telur sig vera fórnarlamb púrtvínsframleiðenda.
Agust skrifaði kl. 13:37
Flokkun: Afríka , Stjórnmál

september 09, 2004

Rushdie vs. bin Laden

Í dag sendi MEMRI frá sér þýðingu á hluta af grein sem Dr. Sa'd Bin Tefla, fyrrverandi upplýsingarmálaráðherra Kuwait skrifaði í Lundúnarblaðið Al-Sharq Al-Awsat. Sjá: Former Kuwaiti Information Minister: Where are the Fatwas Against bin Laden? – 'We Left the World with the Impression that the Arabs are All bin Laden'
Hann veltir fyrir sér muninum á viðbrögðunum við Salman Rushdie á sínum tíma og Osama bin Laden.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 23:41
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd

september 08, 2004

Kill Kill Kill, Vol. 1

Í kvöld sá ég Kill Bill Vol. 1 á vídjói.

Ég man vart eftir öðrum eins vonbrigðum síðan ég sá Matrix (Vol. 1). Ég hef sjaldan orðið fyrir eins miklum vonbrigðum með bíómynd (þó svo ég raunar vissi að þetta yrðu vonbrigði, m.v. lýsingarnar sem ég var búinn að fá). Að mér gæti leiðst eins mikið fyrir framan sjónvarp og síðustu ca. 40 mínúturnar af myndinni? KRÆST!!
  • Austurlensk bardagatækni
  • Japanskar manga-teiknimyndir
  • Splatter-style blóðúthellingar*
  • Yfirborðskenndir karakterar
  • Stærilætislegir monologuear
  • Að ógleymdum öllum sjúka japanska kúltúrnum, einsog skólastelpubúningum
Engin furða að ég þoldi þessa mynd ekki. Það vantar bara Bruce Willis og þá erum við komin með draumabíómynd hæstvirts dómsmálaráðherra! Og þá um leið guaranteraða kvöl og pínu fyrir mig. Beið á tímabili eftir að Julia Stiles, mest óþolandi leikkona hvíta tjaldsins, birtist á skjánum, svona til að endanlega ganga frá mér.
* Tarantino má eiga það að hann hefur húmor fyrir sjálfum sér í því að láta blóðið frussa einsog skrúfað sé frá sturtuhaus þegar menn eru aflimaðir eða haushöggnir. Gerir þær ögn umberanlegri - en samt ekki umberanlegar.

Úff, ég er eiginlega eftir mig. Jeremías, hvað mér leiddist þessi mynd! Teiknimyndaratriðið sem ætlaði t.d. aldrei að taka enda, Steven Seagal taktarnir í annaðhvert skipti sem nokkur opnar munninn í þessar mynd... og já, ég veit að það er einsog að kvarta undan lélegu plotti í klámmynd að finnast vanta "kjarnann", nema ég hafi farið á mis við hann á milli slagsmálanna og sveðraglamursins, en satt að segja fannst mér það ein mestu vonbrigðin við myndina. Ég bjóst við - þrátt fyrir allt sverða-splatterið - þykkari sögu. Maðurinn sem gerði Pulp Fiction ætti að vera fær um það. En því miður er það ekki raunin.

Og svo þessi e-n-d-a-l-a-u-s-u skilmingaratriði. Ég var farinn að vona, svo innilega, innilega, að einhver tæki einn Indiana Jones á þetta, dragi upp skammbyssu og gerði út af við þetta sverðaglamur.

Mér skilst að Vol. 2 sé ekki eins hræðilega leiðinlega uppfull af japönskum stærilátum. Kannski ég gæti þolað hana betur - en eftir þetta stórlega efa ég að ég taki sénsinn á framhaldinu.

En í stuttu máli sagt, þremur orðum nánar tiltekið:
Yfirborðskennd, hégómleg, leiðinleg.

ps.
Að þessi mynd skuli vera í 59. sæti á lista IMDb yfir bestu bíómyndir allra tíma er skandall - og sjálfsagt sama fólki að kenna og að Lord of the Ring myndirnar eru 1/3 af níu efstu sætunum.

Agust skrifaði kl. 0:48 | Comments (1)
Flokkun: Menning

september 04, 2004

Kvenna-klám

Athyglisverð grein í NYT frá liðinni viku, What Women Want to Watch, fjallar um erótískt sjónvarpsefni fyrir konur.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 14:25 | Comments (1)
Flokkun: Jafnréttismál , Menning , Meðmæli , Viðskipti

Bob Dylan

Ævisaga Bobs Dylan kemur út eftir nokkrar vikur. Hún gæti orðið áhugaverð. Guardian fjallaði um málið í vikunni:
Blowin' the gaff: Dylan to tell all
Agust skrifaði kl. 13:51 | Comments (3)
Flokkun: Menning