október 01, 2004

Bush-Kerry kappræðurnar

Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum í kappræður kvöldsins í Bandaríkjunum. Kerry kom mér á óvart með að klúðra þessu ekki og Bush fór versnandi í línulegu falli allan tímann. Sjarminn frá 2000 sannarlega farinn. Það er alltaf auðveldara að gagnrýna en svara fyrir hlutina. Svona er alvara lífsins.

Bush kom mér jafnframt á óvart, því ég bjóst við honum betri. Ég veit hvernig ræðulið eru þjálfuð og án efa var hann vel þjálfaður og fyrirfram ákveðnu svörin voru ágæt en þegar kom að því að bregðast við því sem Kerry sagði klikkaði hann ítrekað. Vafðist tunga um tönn. Tafsaði.

Þegar kappræðunum var lokið var líka svolítið skondið hvernig Bush fjölskyldan kom út sem stíf og kjánaleg. Tómatsósuhjónin voru hinsvegar klöppuð upp næstum því. Tvíburatrixið klikkaði enn og aftur.

En það hefur ekkert að segja hvað frjálslyndum, sjálfumglöðum, evrópskum menntamönnum finnst. Gott er vont og vont er gott. Þannig Bush hlýtur, eftir sem áður, að hafa unnið.

En að lokum, þá kom texti upp í huga minn á meðan á þessum kappræðum stóð:
I’m sick and tired of hearing things
From uptight, short-sighted, narrow-mided hypocritics
All I want is the truth
Just gimme some truth
I’ve had enough of reading things
By neurotic, psychotic, pig-headed politicians
All I want is the truth
Just gimme some truth
[:,:]No short-haired, yellow-bellied, son of tricky dicky
Is gonna mother hubbard soft soap me
With just a pocketful of hope
Money for dope
Money for rope[:,:]

I’m sick to death of seeing things
From tight-lipped, condescending, mama’s little chauvinists
All I want is the truth
Just gimme some truth now

I’ve had enough of watching scenes
Of schizophrenic, ego-centric, paranoiac, prima-donnas
All I want is the truth now
Just gimme some truth

No short-haired, yellow-bellied, son of tricky dicky
Is gonna mother hubbard soft soap me
With just a pocketful of soap
It’s money for dope
Money for rope

Ah, I’m sick and tired of hearing things
From uptight, short-sighted, narrow-minded hypocrites
All I want is the truth now
Just gimme some truth now

I’ve had enough of reading things
By neurotic, psychotic, pig-headed politicians
All I want is the truth now
Just gimme some truth now

All I want is the truth now
Just gimme some truth now
All I want is the truth
Just gimme some truth
All I want is the truth
Just gimme some truth

- John Lennon 1971

Agust skrifaði 01.10.04 03:00

Flokkun: Ameríka , Stjórnmál
Comments

Já, mér fannst Bush koma illa út og Kerrý kom mér pínu á óvart. En miðað við púlsinn hér í Ameríkunni held ég bara að þetta hafi ekki verið nóg, fólk er orðið þreytt á að heyra Kerry gagnrýna Bush.

Hins vegar er þetta blessaða stríð talið vera sterkasti punktur í baráttu Bush, og vonandi tekst Kerry að vera minna Bush bashing þegar hann ræðir um innanríkismál, efnahag og þess háttar.

Erna1 skrifaði 01.10.04 12:19

frjálslyndur, ég hélt alltaf að þú værir íhalssamur og jafnvel svolítið rauður... kannski bara ímyndunarvilla í mér :)

ORRi skrifaði 02.10.04 13:54