október 04, 2004

Spánskt fyrir sjónir

Eftir að hafa verið á Aiesec námskeiði/fundi í allan dag bjallaði ég í Þóri og mæltum við okkur mót hálftíma síðar í miðbænum, því hann var ekki laus fyrr.
Ég nýtti tímann og kíkti á útsöluna í Skífunni. Var svo að labba niður þaðan niður eftir Laugarveginum í þungum þönkum þegar ég sá kunnugtlegt andlit í glugganum í Te og kaffi. "Rosalega er þetta líkt Gulla" hugsagði ég með mér "nei, það getur ekki verið, hann er fluttur til Baskalands". Svo horfði ég meira á manninn í glugganum þangað til hann fór að vinka mér. Þetta var þá Gulli. Það tók mig smá tíma að átta mig á því að maðurinn sem var nýfluttur til Baskanna væri þarna að í glugganum. Ég rauk því inn og spurði hann hvað hann væri eiginlega að gera á Íslandi.
Hann er þá hættur við að búa í heitu löndunum og sat í haustkuldanum og sötraði kaffi með ísmolum. Hann var að bíða eftir Þóri, vini sínum, og þar sem ég var að bíða eftir (öðrum) Þóri settist ég hjá honum og við spjölluðum um sjálfa okkur og Evrópusambandið (þó ekki í sömu andrá).
Eftir stutta stund hringdi Þórir og afboðaði sig. Fimm mínútum seinna hringdi Þórir, vinur Gulla, og afboði sig. Skondið.
Gaman að rekast á Gulla svona fyrir algjöra tilviljun og enn skemmtilegra þar sem ég hafði ekki hugmynd um að hann væri á landinu.
Agust skrifaði 04.10.04 00:53

Flokkun: Daglegt líf