október 23, 2004

Kairoblogg

Medan eg dvel i Kairo er haegt ad fa frettir af mer herna.
Agust skrifaði kl. 19:10
Flokkun: Daglegt líf

október 17, 2004

Styttist

Hafnarfjörður í dag. Kaupmannahöfn í fyrramálið. Kaíró hinn daginn.

Kem svo aftur einhvern tímann rétt fyrir eða rétt eftir jól. Svara emailum en óvíst með annan samskiptamáta, a.m.k. fyrst um sinn.
Agust skrifaði kl. 23:18
Flokkun: Daglegt líf

október 15, 2004

Góður gestur

Í kvöld fékk ég skemmtilega heimsókn. Stefán Einar, eldklerkur, kíkti til mín með myndir frá Eþíópíu.
Það kom mér virkilega á óvart hversu mikið og erfitt ferðalag þetta var. Ég hafði haft hugmyndir um bærilega þægilega ferð á milli kristniboðsstaða en hópur fór sannarlega um erfið svæði og mátti lifa á brauði með hnetusmjöri dögum saman.
Maður getur ekki annað en tekið ofan fyrir fólki sem leggur í svona ævintýri.
Agust skrifaði kl. 0:48
Flokkun: Daglegt líf

október 10, 2004

Hólmsteinski listinn

Egill Helgason þyrfti að koma sér upp "hólmsteinskum lista", einskonar svörtum lista yfir viðmælendur/gesti sem ganga fram af manni í leiðindum og einstrengislegri umræðu.

Listinn yrði kenndur við guðföður einstrengisumræðunnar, Hannes Hólmstein Gissurarson. Yrði prófessorinn efstur að lista - að sjálfsögðu.

Þórhildur Þorleifsdóttir, femínisti og gamall allaballi, væri líklegast önnur á listanum. Þrátt fyrir skemmtanagildi í gullkornum á borð við að ef konur réðu heiminum syltu ekki milljónir barna á ári hverju, myndu fáir sakna hennar. Nóg er til af fólki til að æsa sig yfir Íraks-innrásinni, þannig ég sé ekki hvaða sjónarmið hún á að representa, nema einna helst miðaldrafemínista. Með fullri virðingu er það álíka málefnalegur hópur og skósveinar Davíðs.

En yfir í annað. Fyrsti þátturinn af Sunnudagsþættinum var í dag á Skjá einum. Að byrja með viðtali við Jónínu Bjartmarz er nóg til að ég horfi ekki. Silfrið varð því ofan á. Ég bjóst við einhverju skemmtilegra. Áðan þegar ég skipti yfir var heilög Jóhanna á skjánum. Hvernig dettur fólki í hug að hafa þessar ágætu konur í sama þættinum. Þær vissulega standa fyrir ákveðin gildi í stjórnmálalitrófinu á Íslandi, gott og vel, en eru sannarlega ekki skemmtilegustu pólitíkusarnir til að ræða við.

En aftur að Agli, þó vona ég að hann fái til sín skemmtilegri viðmælendur í vetur og hvíli Hólmsteina og Þórhildir landsins. Ekki það að ég á eftir að sjá fæsta þættina, ég vonast bara til að þessi þáttur verði ekki skugginn af sjálfum sér, líkt og í fyrra.
Agust skrifaði kl. 13:15 | Comments (6)
Flokkun: Ísland

október 09, 2004

Derrida dáinn

París (BBC): Jacques Derrida, einn frægasti heimspekingur nútímans og besti vinur besserwissandi bókmenntafræðinema lést á spítala í París í nótt. Hans verður ýmist sárt saknað eða alls ekki - meðal þeirra sem hafa heyrt um hann á annað borð.
Agust skrifaði kl. 19:24
Flokkun: Heimspeki

THE RUSSIANS ARE COMING!

RÚSSARNIR ERU AÐ KOMA!!!

Það fyndna við þetta er samt að mönnum er alvara - í alvörunni!
Agust skrifaði kl. 19:18
Flokkun: Ísland

Ég er kennari

Auglýsingar kennaraforystunnar um bágborin kjör þessarar langskólagengnu stéttar - "eftir 3ja ára háskólanám hef ég X þúsund krónur á mánuði" - fara í taugarnar á mér. Þó það væri ekki nema fyrir það að í fyrsta lagi eru dæmin út í hött. Teknar eru inn í dæmin t.d. allskyns optional greiðslur í ferða- og skemmtisjóði. Í einni auglýsingunni var viðkomandi kennari að eyða hátt í 1/20 af ráðstöfunartekjum sínum í valrænan nefskatt.
Auk þess fer þetta ímyndarstríð persónulega í taugarnar á mér. Kennarasambandið er álíka vitlaust apparat og samtök sjómanna. Smákóngahernaður forystunnar er móðgun við þá innan stéttarinnar sem vill vinna að málunum með heilbrigðri skynsemi.

Gísli Ásgeirsson, sem kynntist sem kennara í grunnskóla þegar ég var nemandi þar (þó ekki hans), hefur rifjað upp nokkrar sögu úr "launabaráttu" kennara, m.a.:
Verkfallsminning
Kennaraverkfall
Agust skrifaði kl. 19:09 | Comments (1)
Flokkun: Ísland

október 08, 2004

Sprengin á Sínaí

Forysta Hamas segir, sem svar við hernaraðgerðum Ísraela, að nú séu Ísraelar utan Ísrael ekki lengur hulltir. Þeir hafi ekki ráðist að Ísraelum erlendis hingað til en nú verði breyting þar á.

Hótel fullt af Ísraelum er sprengt á Rauðahafsströndinni í landamærabæ sem aðallega lifir á ísraelskum sólargestum og fjárhættuspilurum. Bærinn er varla innan Egyptalands, heldur er landamærahliðið inn í Egyptaland sunnan við hótelið, þannig það stendur á "einskismannssvæðinu" sem oftast er á milli landamærahliða. (Reyndar eru tvær aðrar sprengingar, önnur rétt hjá en hin sunnar á Sínaí skaganum.)

Mér sýnist ekki flókin skýring á því hvað hefur gerst. Ef Múslimska bræðralagið eða önnur egypsk samtök stæðu að þessu vissu þau hvað gerðist síðast þegar ráðist var á túrista í landinu ('97). Þar sem stór hluti evrópskra gesta kemur yfir jólatímann verður stjórnvöldum enn síður skemmt yfir þessu.

Al-Qaieda? Auðvitað koma kornflekspakkaspekingar með einhverjar slíkar kenningar. Ef Hamas er ekki þarna á ferð, þá hljóta þetta að vera samtök tengd þeim. M.ö.o. er þetta í raun og veru enn ein skelfileg sprengjuárásin á ísraelskt skotmark vegna Palestínudeilunnar. Og Ísraelsstjórn verður án efa sá aðili sem mun hefna þessa mannfalls.
Agust skrifaði kl. 0:56
Flokkun: Fréttir , Mið-Austurlönd

október 07, 2004

Jólalag í október

Kann að vera að það sé bara mín skoðun, en er "In the Ghetto" með Elvis Presley ekki jólalag?

Þetta er faktískt séð eitt af mínum uppáhalds "jólalögum".

Ég er ekki einn af þeim sem er viðkvæmur fyrir að heyra jólalög í október. Ég er viðkvæmur fyrir að heyra jólalög, í hefðbundnum, sykursætum, ég-hlakka-svo-til-að-jólin-eru-að-koma skilningi, allt árið um kring. Ég almennt séð þoli ekki jólalög.

Um jólin held ég samt upp á nokkur lög og er "In the Ghetto" eitt þeirra, þó The Pogues eigi auðvitað flottasta jólalag allra tíma.
Agust skrifaði kl. 16:49 | Comments (2)
Flokkun: Menning

október 04, 2004

Spánskt fyrir sjónir

Eftir að hafa verið á Aiesec námskeiði/fundi í allan dag bjallaði ég í Þóri og mæltum við okkur mót hálftíma síðar í miðbænum, því hann var ekki laus fyrr.
Ég nýtti tímann og kíkti á útsöluna í Skífunni. Var svo að labba niður þaðan niður eftir Laugarveginum í þungum þönkum þegar ég sá kunnugtlegt andlit í glugganum í Te og kaffi. "Rosalega er þetta líkt Gulla" hugsagði ég með mér "nei, það getur ekki verið, hann er fluttur til Baskalands". Svo horfði ég meira á manninn í glugganum þangað til hann fór að vinka mér. Þetta var þá Gulli. Það tók mig smá tíma að átta mig á því að maðurinn sem var nýfluttur til Baskanna væri þarna að í glugganum. Ég rauk því inn og spurði hann hvað hann væri eiginlega að gera á Íslandi.
Hann er þá hættur við að búa í heitu löndunum og sat í haustkuldanum og sötraði kaffi með ísmolum. Hann var að bíða eftir Þóri, vini sínum, og þar sem ég var að bíða eftir (öðrum) Þóri settist ég hjá honum og við spjölluðum um sjálfa okkur og Evrópusambandið (þó ekki í sömu andrá).
Eftir stutta stund hringdi Þórir og afboðaði sig. Fimm mínútum seinna hringdi Þórir, vinur Gulla, og afboði sig. Skondið.
Gaman að rekast á Gulla svona fyrir algjöra tilviljun og enn skemmtilegra þar sem ég hafði ekki hugmynd um að hann væri á landinu.
Agust skrifaði kl. 0:53
Flokkun: Daglegt líf

Æj

Það liggur við að ég hafi ekki skap í mér að horfa á Silfrið þegar Hannes Hólmsteinn Gissurarson birtist þar, ekki frekar en þegar hann birtist í sjónvarpi (eða útvarpi) yfir höfuð. Rætnasti maður pólitískrar umræðu á Íslandi er, merkilegt nokk, heilagri en himnafaðirinn þegar aðrir tala um vini hans.
Agust skrifaði kl. 0:36 | Comments (1)
Flokkun: Ísland

október 01, 2004

Bush-Kerry kappræðurnar

Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum í kappræður kvöldsins í Bandaríkjunum. Kerry kom mér á óvart með að klúðra þessu ekki og Bush fór versnandi í línulegu falli allan tímann. Sjarminn frá 2000 sannarlega farinn. Það er alltaf auðveldara að gagnrýna en svara fyrir hlutina. Svona er alvara lífsins.

Bush kom mér jafnframt á óvart, því ég bjóst við honum betri. Ég veit hvernig ræðulið eru þjálfuð og án efa var hann vel þjálfaður og fyrirfram ákveðnu svörin voru ágæt en þegar kom að því að bregðast við því sem Kerry sagði klikkaði hann ítrekað. Vafðist tunga um tönn. Tafsaði.

Þegar kappræðunum var lokið var líka svolítið skondið hvernig Bush fjölskyldan kom út sem stíf og kjánaleg. Tómatsósuhjónin voru hinsvegar klöppuð upp næstum því. Tvíburatrixið klikkaði enn og aftur.

En það hefur ekkert að segja hvað frjálslyndum, sjálfumglöðum, evrópskum menntamönnum finnst. Gott er vont og vont er gott. Þannig Bush hlýtur, eftir sem áður, að hafa unnið.

En að lokum, þá kom texti upp í huga minn á meðan á þessum kappræðum stóð:
I’m sick and tired of hearing things
From uptight, short-sighted, narrow-mided hypocritics
All I want is the truth
Just gimme some truth
I’ve had enough of reading things
By neurotic, psychotic, pig-headed politicians
All I want is the truth
Just gimme some truth


Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 3:00 | Comments (2)
Flokkun: Ameríka , Stjórnmál