janúar 07, 2005
Endalok kaþólskunnar í Frakklandi?
Kaþólskan er í útrýmingarhættu í Frakklandi, eða hvað? Á BBC-vefnum er umfjöllun um málið. BBC World sýndi þátt um málið um daginn en ég missti af honum. Inntakið er endurtekið í þessari skýringu: Losing the faith in France.Meðalaldur franska presta er 68. Frakkar hætta yfirleitt að vinna með 60-65 ára aldurs, þannig flestir prestar eru komnir vel yfir þann aldur. Það sem er alvarlegra, fyrir kirkjuna í Frakklandi, er að menn telja að á næstu 8 árum muni helmingur prestanna hefja eilíft líf með himnaföðurnum.
Núna hefur starfandi prestum í Frakklandi fækkað um meira en helming á síðastliðnum fjórum áratugum og það sem meira er, sumir prestar þjóna fleiri en 30 (síminnkandi) söfnuðum. Ein af athyglisverðari leiðum kirkjunnar til að manna í stöðurnar er að "flytja inn" presta frá fyrrum nýlendum Frakka í Afríku.
Svo slæmt er ástandið að uppi eru raddir sem vilja afnema skírlífi kaþólsku prestanna (sérstaklega þar sem fleiri tækifæri eru fyrir samkynhneigða kaþólikka en að gerast skírlífir prestar í litlu sveitaþorpi) og sumir vilja jafnvel - good heavens! - hleypa kvenþjóðinna að. En með aukinni smokkanotkun, sambúð ógiftra og annarri siðleysu í heiminum er óvíst hvort páfastóll megi vera að því að sinna þessu vandamáli sífækkandi hóps franskra kaþólikka.
Agust skrifaði 07.01.05 17:27
Flokkun: Heimspeki , Meðmæli