janúar 09, 2005
Bhutan
Mig langar til Bhutan. Einhvern tímann fyrir nokkru síðan rakst ég á heimasíðu Druk Air, konunglega flugfélags Bhutan. Þeir hafa nú bætt síðuna sína umtalsvert sé ég en enn eru aðeins þrjár "rútur" í boði; frá Paro til Delhi í gegnum Kathmandú og svo til Bangkoks annars vegar í gegnum Kolkatta og hinsvegar í gegnum Dhaka og Rangún. Líklegast minnsti "national carrier" í heimi. Flugfélagið, sem er í samstarfi við Thai Airways, á tvær British Aerospace 146-100 flugvélar sem eru nú til sölu því að félagið hefur fest kaup á tveimur Airbus 319. Ekki veitir af, því stefnt er á 15 þús. gesti til landsins innan fárra ára. Nú heimsækja rúmlega 7 þús. gestir landið en fyrir nokkrum árum voru þeir aðeins í kringum 2 þús.Ég væri alveg til í að heimsækja litla landið í Himalæjafjöllunum en ekki aðeins er þrælerfitt að komast þangað, heldur verða gestir að borga minnst 200 dollara á dag fyrir að heimsækja landið. Í flestum tilfellum er fólk að borga talsvert meira. Þannig að ég er ekki alveg á leiðinni þangað á næstunni.
Agust skrifaði 09.01.05 19:05
Flokkun: Mannlíf á jörðu