janúar 09, 2005

Öskurþættirnir

Einn af "öskurþáttunum" í bandarísku sjónvarpi, Crossfire á CNN, verður tekinn af dagskrá skv. NYT. Þættir þar sem einn hægrimaður og annar "vinstrimaður" mætast og öskra á hvorn annan misþreytta frasa er svona hér um bil skilgreining á "pólitískum umræðuþáttum" vestanhafs. Vikulegt innslag Hannesar Hólmsteins og Marðar Árnasonar fyrir nokkrum árum var afskaplega kúltúveraður við hliðina á mörgu því sem gengur hvað best í Ameríkanann.
Fyrir skömmu kom Jon Stewart sem gestur í Crossfire, einsog frægt er orðið. Var honum ætlað að vera fyndinn en þess í stað húðskammaði hann þáttastjórnendurna.
Helsta styrkleika New York Times hef ég ekki talið kaldhæðni en þessi lokaorð í ritstjórnarleiðara blaðsins finnast mér alveg frábær:
And last month, when the tsunami hit Asia, viewers got a chance to notice what they were in danger of losing to talk TV. CNN, with a comparatively large international army of journalists at its disposal, went out and covered the story. Fox News and MSNBC had to depend more on conversationalists in the studio, all of whom agreed that tidal waves were very, very bad.And last month, when the tsunami hit Asia, viewers got a chance to notice what they were in danger of losing to talk TV. CNN, with a comparatively large international army of journalists at its disposal, went out and covered the story. Fox News and MSNBC had to depend more on conversationalists in the studio, all of whom agreed that tidal waves were very, very bad.

Agust skrifaði 09.01.05 19:21

Flokkun: Ameríka , Menning , Stjórnmál