janúar 21, 2005
Arabískur hádegismatur
Í morgun átti ég erindi inn á Laugavegi. Eftir fundinn var ég að labba upp Vitastíginn með gaulandi garnir klukkan að ganga eitt þegar ég rakst á skilti fyrir utan gamla Kaffi Puccini þar sem stóð "Arabískur grænmetisréttur með kaffi - 990 kr."Ég gat ekki annað en prufað þetta og gekk inn. Þá var það fyrsta sem ég sá fjórar shishur sem stóðu upp við vegg. Lofaði góðu.
Grænmetisrétturinn reyndist tameyja eða fallahfel einsog það er einnig kallað - að líbönskum/sýrlenskum hætti, húmmus, brauð og grænmeti.
Ég var eini viðskiptavinurinn þessa stundina og bjó kokkurinn til allt saman að mestu frá grunni. Þurfti ég þess vegna að bíða svolítið. Það var samt vel þess virði. Maturinn var frábær, fyrir þá sem kunna að meta arabíska matarhefð.
Spjallaði við eigandann, sem reyndist frá Damaskus eða As-sham einsog hún kallast meðal Araba. Spjallaði við hann hvað hann byði upp á og hvernig viðbrögð arabíski maturinn fengi frá Íslendingum. Þeir eru víst helst til of hræddir við að prufa.
Mæli hiklaust með þessu. Þetta er alvöru arabískur matur, léttur, góður og hollur. Ég fíla yfirleitt ekki grænmetisfæði en þarna er uppstaðan kjúklingabaunir sem eru soðnar tímunum saman í mauk, sem er síðan formað og steikt. Svo er þetta alls ekki dýrt. Ég át á mig gat og svo fylgir kaffi með. Þúsundkall, fínt hádegisverð.
Agust skrifaði 21.01.05 15:22
Flokkun: Matur og vín