febrúar 12, 2005
Lággjaldaflugfélagagæd
Ég skil ekki af hverju enginn hefur sett upp síðu á internetinu sem auðvelda fólki að skipuleggja ferðalög frá Íslandi til Evrópu með lággjaldaflugfélögum.Einn kosturinn við lággjaldaflugfélög er að maður borgar hlutfallslega sama fyrir aðra leiðina og báðar leiðir. Þannig getur maður t.d. flogið til Kaupmannahafnar með Iceland Express og þaðan til Berlinar með easyjet (eða t.d. Maersk). Þaðan væri t.d. hægt að fara með Air Berlin til Rómar og frá Róm væri hægt að fljúga til London með nokkrum flugfélögum.
Það sem ég er hinsvegar fyrst og fremst að tala um er að halda utan um hvaða flugfélög eru að fljúga (ódýrt) frá Stansted og Kastrup (og hugsanlega Heatrow og jafnvel Gatwick líka) og komment frá þeim sem hafa flogið með viðkomandi félögum, t.d. hvernig sé best að koma sér til og frá flugvelli o.s.frv.
Þess má geta að ef einhver hefur hug á að fara til Kaíró, Beirút, Damaskus eða Dúbaí þá er serbneska ríkisflugfélagið JAT að bjóða upp á tiltölulega ódýrar ferðir frá London til þessara staða með millilendingu í Belgrade.
Annars eru þetta hjálplegar síður:
Traveljungle.co.uk
Attitudetravel.com
Langur listi yfir lággjaldaflugfélög
Agust skrifaði 12.02.05 16:05
Flokkun: Internetið
Comments
Tjekk it
Tip skrifaði 12.02.05 16:39