febrúar 21, 2005

Gefið börnunum kjöt!

Eitthvað sem allir ættu að geta sagt sér sjálfir: Children 'harmed' by vegan diets
Það er hættulegt fyrir börn að fá ekki kjöt að borða. Nú hefur þetta verið sannað, vísindalega. Vonandi að fólk hætti þeirri ómennsku að borða bara grænmeti - tala nú ekki um að neita börnunum sínum um kjötát. Sumar grænmetisætur neita sér aðeins um rautt kjöt og aðrar borða fisk þó þær borði aldrei kjöt. Maður getur svosem virt það enda augljósir próteingjafar enn í boði. Klikkaðasti trúflokkurinn meðal grænmetisæta er hinsvegar "vegan" hópurinn sem borðar ekki einu sinni mjólkurafurðir eða egg. Nú mæli ég hvorki með miklu mjólkur- eða eggáti, af heilsufarsástæðum, en að neita sér gjörsamlega um þessa fæðu er bara vitleysa.

Er ég með fordóma? Kannski. Mér finnst bara veganismi vera álíka rangur og annar fundamentalismi.
Agust skrifaði 21.02.05 23:18

Flokkun: Matur og vín
Comments

Mér finnst þessi vísindalega "sönnun" vera frekar vafasöm. Vannærð börn í Afríku hressast við það að fá meira að borða. So what? Hvað kemur það grænmetisætum við?

Það er allt í lagi að vera með fordóma en það er rangt að réttlæta þá með vísun í kjánalega rannsókn.

Kristján skrifaði 22.02.05 10:22

Hver eru rökin gegn því að borða kjöt? Engin. Þetta eru næringarleg trúarbrögð. Borðar ekki egg? Ok, kólestról er óhollt. Borðar ekki mjólkurvörur? Ok, kannski ertu með mjólkuróþol. Drekkur ekki kaffi? Ok, það er einsog svo margt annað dásamlegt í lífinu óhollt fyrir heilsu þína. Gott og vel - en kjöt? Drepa ekki dýr? Komm-on!

Hinn ágæti heimspekingur Peter Singer, sem skrifaði biblíu dýraverndunarsinna, Animal Liberation, hefur sagt t.d. að ef við gætum tamið t.a.m. ljón af því að borða önnur dýr ættum við að gera það. Þetta er virtasti dýraverndunarsinni heimspekinnar! Nú finnst mér ýmislegt sem hann hefur sett fram mjög gott en þetta er bara rugl!

Að borða ekki kjöt því að þú átt ekki að drepa dýr - "öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir" fílósófían - er, einsog ég sagði áður, trúarbrögð (í skársta falli ákveðin heimspeki). Rétt einsog ljónið höfum við rétt til að borða önnur dýr. Hitt er svo annað mál að við ættum að slátra þeim með sem mannúðlegustum hætti, af virðingu við okkur sjálf.

M.ö.o. ef þú borðar ekki kjöt af því að þér finnst það vont, sama er mér. Ef þú vilt halda því fram að kjöt sé "siðlaus" fæða skal ég vera ósammála þér í prinsippinu. Ef þú vilt ala börnin þín upp í þeirri trú að allt kjöt sé vont, af siðferðisástæðum, finnst mér það álíka vont einsog að ala barnið upp án þess að gefa því nokkurn tímann grænmeti eða ávexti.

Og hana nú!

Ágúst skrifaði 22.02.05 22:29

Menn gerast grænmetisætur af ýmsum ástæðum og skýringin er alls ekki alltaf sú að þeir séu á móti því að litlu sætu dýrin séu drepin. Ég þekki til dæmis eina grænmetisætu sem er fjarri því að vera dýravinur, nánar tiltekið finnst henni dýrin vera svo ógeðsleg að hún getur ekki hugsað sér að leggja þau sér til munns.

Það er hins vegar rétt að háværasti hópur grænmetisætna er sá sem er á móti kjötáti af
"siðferðisástæðum" og margir þeirra stunda trúboð af ákafa og reyna að fá kjötætur til að láta af þeirri iðju. Ég er á móti slíku trúboði. Menn eiga að borða það sem þeim líður vel af að borða.

Að sama skapi er ég á móti trúboði í hina áttina. Þeir sem borða kjöt mega það mín vegna en þær ættu að reyna að láta vera að hvetja grænmetisætur til að gera slíkt hið sama.

Kristján skrifaði 23.02.05 09:47

Nú er ég kjötæta og hef ekki fordóma gegn því að borða nokkurn skapan hlut, en ...

... getur ekki verið að hér gildi ekki hið sama um börn og fullorðið fólk. Börn sem eru að vaxa þurfa mjólk og kjöt og slíka næringu en fullorðið fólk þarf fyrst og fremst að halda sér lifandi, og til þess dugir grænmetisfæði prýðilega ef það er rétt sett saman.

Þetta með trúboðið hljómar ágætlega en er það samt ekki alltaf svo að þegar fólk er sannfært um einhverja skoðun reynir það að sannfæra aðra um ágæti hennar. Við erum vön því og lítum varla á það sem trúboð nema þetta séu jaðarskoðanir (t.d. eins og skoðanir þeirra sem vilja ekki einu sinni borða ávexti nema þeir hafi fallið „sjálfviljugir“ af trjánum).

Ég hef hitt marga „vegans“ en flesta þeirra í útlöndum. Fólk sem vill ekki snerta grænmeti hef ég hins vegar einkum hitt á Íslandi.

Sverrir skrifaði 25.02.05 11:45

Tja, það var nú líka pointið með upphaflegu færslunni. Grænmetisætur mega vera grænmetisætur í friði, það er þeirra mál. Þær ættu hinsvegar ekki að neyða lífstíl sinn upp á afkvæmi sín þar sem það gæti verið þeim skaðlegt.

Ágúst skrifaði 26.02.05 00:02

Ég efast nú um að vegan-mæður neiti börnum sínum um brjóstamjólkina og engri annarri dýrategund hefur dottið sá óskundi í hug að drekka mjólk úr öðrum tegundum fram á fullorðinsár. Nú er ég ekki að halda því fram að mjólk sé óholl, en tvö mjólkurglös á dag alla ævi er heldur mikið, og mjög mikið, í raun, í buddu mjólkuriðnaðarins. Það sama á við um kjötiðnaðinn og matvælaiðnaðinn almennt. Það er ekkert grimmilegt við það að drepa dýr til matar, en það er skammarlegt þegar slíkt er orðið færibandavinna framkvæmd af gróðahugsjónum.

Margir eru grænmetisætur eða vegans af and-kapitalískum eða öðrum álíka ástæðum. Dýr sem vesturlandabúar leggja sér til munns fá t.d. hlutfallslega meira og vandaðra fæði en fólk í þriðja heiminum.

grænmetisæta skrifaði 11.03.05 07:22