febrúar 28, 2005
Frjálsar kosningar í Egyptalandi?
Varla.Ég heyrði fyrst af tilkynningu Múbaraks (Mubarak Pushes Egypt to Allow Freer Elections) í partýinu sem ég hélt á laugardaginn. Egypti, einn gestanna, var að tala um þetta. Túnisbúi sem var hérna líka hló við og sagði „já, ætli þetta verði ekki frjálsar kosningar að hætti Ben-Alis!“
Ben-Ali fékk ekki nema 94,5% í síðustu kosningum, sem voru í október s.l. en næsti maður á eftir honum fékk heil 3,8%.
En hver veit, kannski að Múbarak greyið sé farinn að sjá að það sé betra að slaka á ólinni en láta hana bresta.
M.a. Bandaríkjastjórn, sjálfskipuð boðari lýðræðis í Mið-Austurlöndum, er treg til að fagna tíðindunum.
Agust skrifaði 28.02.05 15:50
Flokkun: Mið-Austurlönd