febrúar 28, 2005

Frjálsar kosningar í Egyptalandi?

Varla.

Ég heyrði fyrst af tilkynningu Múbaraks (Mubarak Pushes Egypt to Allow Freer Elections) í partýinu sem ég hélt á laugardaginn. Egypti, einn gestanna, var að tala um þetta. Túnisbúi sem var hérna líka hló við og sagði „já, ætli þetta verði ekki frjálsar kosningar að hætti Ben-Alis!“

Ben-Ali fékk ekki nema 94,5% í síðustu kosningum, sem voru í október s.l. en næsti maður á eftir honum fékk heil 3,8%.

En hver veit, kannski að Múbarak greyið sé farinn að sjá að það sé betra að slaka á ólinni en láta hana bresta.

M.a. Bandaríkjastjórn, sjálfskipuð boðari lýðræðis í Mið-Austurlöndum, er treg til að fagna tíðindunum.
Agust skrifaði kl. 15:50
Flokkun: Mið-Austurlönd

febrúar 25, 2005

Ólafur Ragnar í Indlandi

What would bring a warm smile to Mr Grimsson's face would be to see Indian tourists experiencing the midnight sun and Reykjavik's roaring night life. And it is unlikely that Indians wouldn't feel at home, especially since the capital boasts of one of the best Indian restaurants. "It is called the East India Company and the food is yummy. Authentic spices are brought in from South Indian farms!"
- 'Pharma to rule in the 21st century' (The Asian Age, í gegnum IHT)

En hann talaði ekki bara um mat...
The tone for the three-day-event was set early by the President of Iceland Olafur Ragnar Grimsson who called for the setting up of a “new open network of those who care” to combat catastrophic climatic changes like global warming.

“There are still some who say this is all sophisticated scaremongering...to them, I say, come to my country. The glaciers are melting along the Arctic, it has broken all records in Greenland. Now, we have an ice-season which is shorter by almost a month!
- Warning from Iceland Prez on global warming

Samkvæmt mínum heimildum var ekki mikið um það fjallað á Íslandi en ég sá viðtal á BBC World við Ólaf Ragnar, þar sem hann bauð Bush Bandaríkjaforseta að koma í heimsókn (til Íslands) og hann skyldi kenna honum allt sem hann þyrfti að vita um "global warming".
Agust skrifaði kl. 11:23 | Comments (3)
Flokkun: Ísland

Í lýðveldinu Egyptalandi

Góðir punktar í þessari ritstjórnargrein Wash. Post í gær. Þar er stefnu Múbaraks mótmælt. Ayman Núr hefur hlotið aðdáun stórs hóps hérna fyrir að segja það sem má ekki segja, að stefna Múbaraks gangi ekki upp og að hann eigi ekki að vera kosinn í september n.k. til næstu 6 ára.
Ég var að lesa það í einu af blöðunum sem gefin eru út á ensku hérna (yfirleitt að nafninu til af útgáfufyrirtæki skráðu erlendis) að á fundi hefðu verið tilkynnt um úrslit kosninganna í september. Blaðið fagnaði þessari skarpskyggni stjórnvalda og sagðist vonast til að hagvaxtarspá ríkisstjórnarinnar fyrir árið yrði jafn nákvæm.

Sjá einnig:
Cairo crackdown undermines talk of reform (FT)
Agust skrifaði kl. 11:01
Flokkun: Mið-Austurlönd

febrúar 21, 2005

Gefið börnunum kjöt!

Eitthvað sem allir ættu að geta sagt sér sjálfir: Children 'harmed' by vegan diets
Það er hættulegt fyrir börn að fá ekki kjöt að borða. Nú hefur þetta verið sannað, vísindalega. Vonandi að fólk hætti þeirri ómennsku að borða bara grænmeti - tala nú ekki um að neita börnunum sínum um kjötát. Sumar grænmetisætur neita sér aðeins um rautt kjöt og aðrar borða fisk þó þær borði aldrei kjöt. Maður getur svosem virt það enda augljósir próteingjafar enn í boði. Klikkaðasti trúflokkurinn meðal grænmetisæta er hinsvegar "vegan" hópurinn sem borðar ekki einu sinni mjólkurafurðir eða egg. Nú mæli ég hvorki með miklu mjólkur- eða eggáti, af heilsufarsástæðum, en að neita sér gjörsamlega um þessa fæðu er bara vitleysa.

Er ég með fordóma? Kannski. Mér finnst bara veganismi vera álíka rangur og annar fundamentalismi.
Agust skrifaði kl. 23:18 | Comments (6)
Flokkun: Matur og vín

febrúar 20, 2005

Staðreynd dagsins

Franska Pólynesía hefur fulltrúa á Evrópuþinginu.

Samkvæmt fréttum er fjör í stjórnmálalífi eyjanna þessa dagana. Forsetinn og heimastjórn eyjanna fékk á vantrauststillögu sem var samþykkt í atkvæðagreiðslu.
Agust skrifaði kl. 23:48
Flokkun: Evrópusamvinnan

febrúar 15, 2005

Debet/kredit

Bandarísk yfirvöld virðast hafa átt í stökustu vandræðum með debet og kredit í Bagdad:
Former CPA official Franklin Willis told the hearing there had been widespread abuse and waste of money at the authority.

He showed pictures of himself and other US officials holding plastic-wrapped bundles of $100 notes totalling $2m, which he said was used to pay a security contractor.

"We told them to come in and bring a bag," Mr Willis said.

He added that "a combination of inexperienced officials, fear of decision-making, lack of communications, minimal security, no banks and lots of money to spend" led to chaos that was typical of the Wild West.
- Iraq agency 'run like Wild West'
Agust skrifaði kl. 17:52
Flokkun: Ameríka , Mið-Austurlönd

febrúar 13, 2005

Arabíska útgáfan

Af hverju það reynir á ímyndunaraflið að horfa á Friends í Arabalöndunum: Að geta í eyðurnar
Agust skrifaði kl. 15:38
Flokkun: Menning

Velkomin til Nígeríu!

Þetta er nokkuð athyglisvert: Zimbabwe farmers mark new territory
Héraðsstjórinn í Kwara, í Vestur-Nígeríu, hefur boðið hvíta bændur sem voru hraktir af löndum sínum í Zimbabwe af Mugabe-stjórninni til að setjast að í héraðinu og þannig - eða svo vonar héraðsstjórinn - hraða efnahagslegri þróun í héraðinu og koma með með sér þekkingu í nýtímavæddum landbúnaði. Nígería flytur inn í dag stóran hluta af matvælaþörf sinni, þannig heimamarkaður fyrir landbúnaðarvörur er feikistór.
Agust skrifaði kl. 15:22
Flokkun: Afríka

febrúar 12, 2005

Lággjaldaflugfélagagæd

Ég skil ekki af hverju enginn hefur sett upp síðu á internetinu sem auðvelda fólki að skipuleggja ferðalög frá Íslandi til Evrópu með lággjaldaflugfélögum.

Einn kosturinn við lággjaldaflugfélög er að maður borgar hlutfallslega sama fyrir aðra leiðina og báðar leiðir. Þannig getur maður t.d. flogið til Kaupmannahafnar með Iceland Express og þaðan til Berlinar með easyjet (eða t.d. Maersk). Þaðan væri t.d. hægt að fara með Air Berlin til Rómar og frá Róm væri hægt að fljúga til London með nokkrum flugfélögum.
Það sem ég er hinsvegar fyrst og fremst að tala um er að halda utan um hvaða flugfélög eru að fljúga (ódýrt) frá Stansted og Kastrup (og hugsanlega Heatrow og jafnvel Gatwick líka) og komment frá þeim sem hafa flogið með viðkomandi félögum, t.d. hvernig sé best að koma sér til og frá flugvelli o.s.frv.

Þess má geta að ef einhver hefur hug á að fara til Kaíró, Beirút, Damaskus eða Dúbaí þá er serbneska ríkisflugfélagið JAT að bjóða upp á tiltölulega ódýrar ferðir frá London til þessara staða með millilendingu í Belgrade.

Annars eru þetta hjálplegar síður:
Traveljungle.co.uk
Attitudetravel.com
Langur listi yfir lággjaldaflugfélög
Agust skrifaði kl. 16:05 | Comments (1)
Flokkun: Internetið

Tony og Maggie

Athyglisverð grein í nýjasta Economist: Lessons from Maggie

Tony Blair is an admirer of Margaret Thatcher. That should help him learn from her biggest mistake

Hvernig talað er um Möggu Thatcher er hinsvegar athyglisverðasti hluti greinarinnar, svona miðað við að þetta er jú Economist.
Agust skrifaði kl. 0:02
Flokkun: Meðmæli , Stjórnmál

febrúar 05, 2005

HM í handbolta

Mér skilst að Íslendingar hafi klúðra HM í handbolta í Túnis. Ég reyndar gerði mér ekki grein fyrir hversu illa áhugasamasta handboltaþjóð heims stóð sig fyrr en ég sá grein í Al-Ahram Weekly þar sem egypska handboltaliðinu er hallmælt fyrir árangur sinn. Fjórtánda sætið sé skammarlegt, svo skammarlegt að einungis Ísland, Japan, Alsír, Argentínu, Brasilíu, Angóla, Qatar, Kúveit, Kanada og Ástralíu stóðu sig verr! Egyptar höfnuðu í fjórða sæti á HM í Frakklandi 2001. Síðustu tvö mót á undan höfðu þér lent í því sjötta og sjöunda.
Agust skrifaði kl. 16:19
Flokkun: Ísland