mars 07, 2005
Hreinir Svisslendingar
Þetta er nokkuð skondin frásögn á BBC-vefnum: A Swiss hygiene inspector callsÞegar fólk flytur úr íbúðum sínum í Sviss kemur heilbrigðiseftirlitið til að taka íbúðina út. M.ö.o. fer fram allsherjar heilbrigðisskoðun áður en nýr eigandi getur tekið við íbúðinni. Og sú skoðun er framkvæmd með svissneskri nákvæmi.
Crazy!
Agust skrifaði 07.03.05 14:07
Flokkun: Mannlíf á jörðu
Comments
Það tók sko enginn út íbúðina sem við erum að leigja í Genf. Hún var verulega óhrein þegar við fengum hana og full af löngum dökkum kvenmannshárum, jakk.
Þess ber þó að geta að fyrri íbúi er frá Kanada en ekki Sviss og auk þess er um framleigu að ræða svo þetta hvorki sannar neitt né afsannar um hreinlæti Svisslendinga.
Ég get þó staðfest það hér og nú að hvergi í heiminum hef ég séð snyrtilegri strætisvagna!
Kristján skrifaði 07.03.05 14:44