mars 26, 2005

Arra'ís Hosní Múbarak

Ég kaupi Egyptian Gazette (sem kallast Eg. Mail á laugardögum) á nær hverjum degi.

Í dag var, að vanda, mynd af Múbarak með flenni fyrirsögn. Eitthvað um hvað hann hafði sagt í viðtali við franska sjónvarpsstöð. Ég gaf blaðið áðan annars gæti ég vitnað beint í fyrirsögnina.

Ég fann blöðin frá því í gær og aftur til s.l. mánudags. Fyrirsagnarnir á forsíðu blaðsins voru eftirfarandi (og stutt lýsing á mynd):

fös. 25/3:
Egyptian-French summit tackles ME, bilateral ties
Mubarak: Syria to announce Lebanon pullout timetable 'within a week'
Chirac: Egypt's bid for Security Council seat should be considered

Mynd: Múbarak og Chirac takast í hendur

fim. 24/3:
Arab leaders wrap up 2-day summit with 'Algerian Declaration'
Mubarak proposes committee to activate peace initiative as Arabs renew Israel offer

Mynd: Múbarak óskar Bouteflika Alsírsforseta og Moussa aðalritara Arababandalagsins til hamingju með hvernig til tókst með fundinn

mið. 23/3:
Mubarak, Arab leaders open Algiers Summit
Egypt draws up 6-point plan for facing current challenges
Meeting sends world a message of peaceful intentions as AL demands Israeli concessions

Mynd: Gamli góði Hosní skælbrosandi við borðið sitt við upphaf fundarins

þri. 22/3:
Leaders start 2-day summit in Algeria today
Arabs set to relaunch peace initiative

Mynd: Múbarak fundar með Walid Jamblatt, leiðtoga Drúsa í Líbanon, meðfylgjandi fyrirsögn, forsetinn hittir leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Líbanon. Neðar á forsíðunni er svo álíka stór mynd og fyrirsögn, Múbarak hittir fulltrúa fulltrúadeildar Bandaríkjaþings

mán. 21/3:
FMs finalise preparations for leaders' meeting
AL: Arabs agree on summit agenda

Mynd: Hr. Hosní hittir fyrrnefnda sendinefnd og auðvitað meðfylgjandi stærðar fyrirsögn

Er nema von að ein mikilvægasta sögnin sem maður lærir ef maður ætlar sér einhvern tímann að lesa arabískt dagblað er að "taka á móti"!

Skemmtilegt dæmi um þessa "blaðamennsku" var þegar Arafat dó. Þá var fyrirsögnin eitthvað á þá leið að forsetinn vottaði palestínsku þjóðinni samúð sína. Næsta frétt: Arafat er látinn.

Hvað sem því líður, þá er Múbarak í engu sérstöku uppáhaldi hjá fólki hérna. Fólk er jafnvel furðu viljugt til að lýsa andúð sinni á "kerfinu". Almennt mætti þó tala um "pólitískt andleysi". Maður sér hinsvegar ekki oft myndir af forsetanum. Á hótelum, í bönkum og einstaka stöðum. Örsjaldan á götu úti. Niður í metróstöðunni við Óperuna er stór mynd af karlinum. Nokkrar á opinberum byggingum, utan á lögregluskólanum t.d. og svo auðvitað víða í hinu miklu Múgamma. Annars sér maður karlinn helst á forsíðum blaðanna - og auðvitað á ríkissjónvarpsstöðvunum.

Það var og.
Agust skrifaði 26.03.05 23:50

Flokkun: Mið-Austurlönd