apríl 10, 2005
Að heilsa eða ekki heilsa
Tókust forsetar Írans og Ísraels í hendur? Assad, Sýrlandsforseti, játar að hafa tekið í spaðann á Katsav.
Múgabe rétti fram höndina að Karli prins og þeir tókust í hendur.
Einhvern veginn finnast mér þetta hálf hjákátlegar fréttir, sérstaklega sú síðari. Fyrir Írani er það vissulega frétt ef forseti landsins á nokkur samskipti við Ísraela og maður svosem skilur það. Aftur á móti ættu allir menn að skilja að lágmarks kurteisi ætti að vera gætt við útfarir. Handaband í fjölmenni verður seint skilið sem pólitísk viðurkenning. Eða hvað? Á sama tíma er það athyglisvert að sýrlenska ríkisstjórnin hefur opinberlega tekið á handabandi Assads og Katsavs sem kurteisiskveðju á meðan Íranir, sem sýnir e.t.v. hvernig er enn rotnara þar í pottinn búið, hafa neitað tilvist handabands Khatamis og Katsavs, sem reyndar eru fæddir í sömu borg í Íran og töluðust við, skv. Ísraelsforsetanum, á farsi.
Agust skrifaði 10.04.05 12:57
Flokkun: Stjórnmál